Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 09:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Allar líkur á að Samúel Kári spili með Val á morgun - Búinn að skrifa undir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samúel Kári Friðjónsson er að ganga í raðir Vals, félagið er að kaupa hann af Stjörnunni.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur fengið er hann búinn að skrifa undir og verður Samúel Kári fljótlega kynntur sem leikmaður Vals.

Valur á heimaleik gegn FH í Bestu deildinni á morgun og ætti Samúel að geta tekið þátt í þeim leik með Völsurum.

Samúel Kári gekk í raðir Stjörnunnar haustið 2024 og var því í rúmt tímabil í Garðabæ. Hann spilaði 25 deildarleiki í fyrra og hefur komið við sögu í fyrstu þremur keppnisleikjunum á þessu tímabili.

Hann á að baki rúmlega áratugar feril sem atvinnumaður erlendis. Hann byrjaði á því að vera á mála hjá Reading og byrjaði svo að spila í Noregi. Í Noregi lék hann með Viking og Vålerenga, Paderborn í þýsku úrvalsdeildinni og Atromitos í Grikklandi. Miðjumaðurinn á að baki átta A-landsleiki og 43 leiki fyrir yngri landsliðin.

3. umferðin í Bestu
miðvikudagur 22. apríl
18:00 ÍA-KA (Akraneshöllin)
18:00 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)

fimmtudagur 23. apríl
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Slapp
banner
banner