Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
„Af því enginn þekkir nafnið þá veljið þið hann ekki mann leiksins”
Viktor Örn: Klaufalegt rautt spjald en enginn ásetningur
Arnar fer yfir valið - „Ekki á hverjum degi sem maður mæti Messi og félögum“
Ísland í dag - Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins hefjast
Gylfi sáttur með sigurinn: „Þessi seinni hálfleikur var mjög langur"
Jói hrósaði nýliðunum: Þær tóku fyrri hálfleikinn bara í nefið
Einar Guðna: Vindurinn tók boltann bara til baka
Anton Ingi pirraður: Við verðum að hafa kassann út í 90 mínútur
   mið 22. apríl 2026 20:50
Sölvi Haraldsson
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við áttum að vera búnir að klára þennan leik í hálfleik í rauninni. Við vorum mikið betri í dag og súrt að hafa ekki náð að loka þessum leik.“ sagði Lárus Orri, þjálfari Skagamanna, eftir 1-1 jafntefli í Akraneshöllinni í kvöld.

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  1 KA

Hvernig metur Lárus fyrstu þrjá leiki Skagamanna í ár?

„Í dag hefðum við átt að nýta færin okkar betur. Annars var þetta heilt yfir flottur leikur. Á móti Blikum þá var seinni hálfleikurinn mjög flottur, leyfðum þeim að vera of mikið með boltann í fyrri hálfleiknum. Í fyrsta leiknum var þetta rólegt og menn að komast í takt. Ef ég skoða spilamennskuna í fyrstu leikjunum er hún bara fín en við erum bara með tvö stig. Núna hefst undirbúningur fyrir leikinn á móti Víking, það verður spennandi að heimsækja Íslandsmeistarana.“

Gísli Eyjólfsson fer meiddur af velli í hálfleik, hver er staðan á honum?

„Ég veit ekki hver staðan á honum er. Hann snéri sig á ökkla, það kemur bara í ljós á morgun hver staðan á honum er.“

Markús Páll skoraði í dag og hefur byrjað leiktíðina vel fyrir ÍA.

„Markús er búinn að vera mjög flottur eins og margir í dag. Böddi var flottur líka. Ég held að það sé ósanngjarnt að pikka út menn hjá mér í dag en ég held að ég verði að pikka út Hauk Andra. Haukur var alveg frábær í dag og hlýtur að vera í liði umferðarinnar því hann var mjög góður í dag á báðum endum vallarins.“

Viðtalið við Lárus má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner