Þórður Inga: Ömurlegt að fá á sig mark hálfri mínútu seinna
Auglýsing

Þórður var flottur í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður var flottur í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórður Ingason, markvörður Fjölnis, átti stórleik á milli stanganna þegar nýliðarnir gerðu 1-1 jafntefli við Íslandsmeistara KR í Pepsi-deildinni í Grafarvogi í kvöld.
Þórður er líklega stærsta ástæðan fyrir því að Fjölnismenn tóku stig út úr leiknum, stig sem hann sjálfur er mjög sáttur með.

„Ég er mjög ánægður með þetta stig. Þetta var ekkert sérstakur leikur, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem við vorum lélegir og þeir voru miklu betri. Svo skorum við og það er alveg ömurlegt að fá á sig mark hálfri mínútu seinna, en við tökum þetta stig og það er flott í söfnunina okkar,“ sagði Þórður.
Þórður átti frábæran leik gegn sínum gömlu félögum og varði oft vel. Hann var að vonum ánægður með eigin frammistöðu.
„Ég er bara mjög ánægður með minn leik og varnarinnar allrar í heild sinni. Við vorum frekar þéttir, gáfum nokkur færi á okkur en ekkert svo mörg. Það eru komnir fimm leikir án taps og það er bara flott, við reynum að halda áfram á sömu braut,“ sagði Þórður, sem viðurkennir að það sé betra en menn þorðu að vona að Fjölnismenn séu enn taplausir eftir fimm leiki.
„Ég held að ég geti alveg sagt það til að vera heiðarlegur, maður bjóst ekki við því.“