Heiðar Torleifs: Bið stuðningsmenn okkar afsökunar
Auglýsing

Mynd: Vestri

Mynd: Vestri

Vestri fór suður á land og mætti Gróttu á Vivaldivellinum í Lengjudeild karla í dag. Leikurinn endaði í 5-0 niðurlægjandi tapi Vestramanna og var Heiðar Birnir Torleifsson, þjálfari Vestri langt frá góðu gamni eftir frammistöðuna.
„Mönnum líður náttúrulega bara alveg hrikalega, þetta var skelfilegt á okkar hálfu og vil ég biðja stuningsmenn okkar afsökunar á þessari frammistöðu. Okkur líður ekki vel."

Vestri fengu á sig fjögur mörk í fyrri hálfleik og var Heiðar spurður hvort þeir hafi dottið úr skipulagi snemma.
„Það gefur sig að þegar maður fær á sig svona mikið af mörkum að skipulagið var ekki að ganga upp. Það voru ákveðnar færslur sem klikkuðu hjá okkur og Gróttumenn nýttu sér það bara mjög vel og voru frábærir í dag. Þetta var ekki góður dagur og auðvitað getur það komið fyrir en það er engin afsökun. En okkur líður bara hrikalega og ætlum svo sannarlega að svara í næsta leik."
Vestri eiga enn eftir að spila heimaleik á tímabilinu og var þetta fimmti leikur þeirra í röð þar sem þeir spila ekki á heimavelli. Næsti leikur þeirra er gegn Grindavík 28. maí á Ísafirði. Heiðar er spenntur að fá að spila þar aftur.
„Jú, ég held að það sé fínt. Ekki að ég sé að búa til einhverjar afsakanir en auðvitað hefur það áhrif að vera að ferðast mikið og þetta er auðvitað sjötta helgin í röð þar sem við erum að ferðast. Ég er ekki að búa til neinar afsakanir en bara lélegt á okkar hálfu. Við skömmumst okkar og getum ekki beðið eftir næsta leik."
Viðtalið í heild sinni má finna í sjónvarpinu hér að ofan