22.06.05 - 07:46
Arnar Jóhannsson
Steve Claridge tekur við Millwall (staðfest)

Steve Claridge í baráttunni

Steve Claridge í baráttunni

Gamala brýnið Steve Claridge hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri hjá Millwall sem leikur í Championship (næst efstu deild). Claridge er 39 ára gamall og hefur 101 leik fyrir Millwall á sínum ferli. Hann tekur við af Dennis Wise sem sagði upp í mai.
"Ég er mjög ánægður með að hafa fengið þetta tækifæri. Ég naut þess mjög mikið að spila fyrir þetta félag á sínum tíma og það var ekki erfitt að fyrir mig að gera upp hug minn þegar þeir buðu mér þetta starf," sagði Claridge. "Það þekkja mig allir hjá félaginu og vita hvað þeir fá. Ég hlakka til að byrja að stjórna liðinu."
Claridge var í samningaviðræðum við Wycombe um nýjan samnining þegar tækifærið gafst en hann lék með félaginu á síðustu leiktíð. Hann hefur áður komið að þjálfun því hann stjórnaði Portsmouth til skamms tíma tímabilið 2000/2001. Það endaði snögglega þegar Graham Rix var ráðinn í hans stað. Þá þjálfaði hann utandeildarliðið Weymouth í rétt rúmlega eitt ár en var rekinn þaðan í október síðastliðnum.
George Burley og Lennie Lawrence höfðu einnig verið orðaðir við stöðuna en talsmaður Millwall segir Claridge alltaf hafa verið fyrsta kostinn í stöðuna og sá eini sem hafi verið boðið starfið.