Fotbolti.net
22.06.05 - 15:17
Magnús Már Einarsson

Ólafur Ingi til Brentford (Staðfest)

Ólafur Ingi til Brentford (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason skrifaði fyrir stundu undir tveggja ára samning við enska 2.deildarliðið Brentford. Ólafur Ingi sem er fyrirliði U-21 árs landsliðs Íslendinga hefur verið að leita sér að liðið en hann fékk að fara frá Arsenal fyrir skömmu.
Ólafur sagði við Fótbolti.net í dag aðspurður hvernig honum litist á aðstæður hjá Brentford: ,,Mér lýst bara mjög vel á þetta allt saman. Hlakkar til að byrja æfingar 3.júlí. Þetta lýtur mjög vel."

Fjöldamörg lið höfðu áhuga á Ólafi Inga. Viking í Noregi, Örgryte og fleiri lið í Svíþjóð höfðu áhuga, lið í Skotlandi einnig sem og Doncaster, Swansea og Chesterfield úr ensku 2.deildinni. Einnig voru 2-3 lið í 1.deild sem spurðu út í kaup og kjör og fleira en Ólafur hafði þá ásamt umboðsmanni sínum Ólafi Garðarssyni nánast tekið ákvörðun um að semja við Brentford.

Ólafur sagði einnig í samtali við Fótbolti.net: ,,Martin Allen reið baggamuninn í þessu, þjálfarinn. Hann er búinn að horfa á mig spila oft og hefur tröllatrú á mér. Það er meira virði en margt annað."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.