22.06.05 - 13:40
Magnús Már Einarsson
Amoroso farinn frá Malaga til Sao Paulo (Staðfest)




Brasilíski framherjinn Marcio Amoroso hefur yfirgefið spænska liðið Malaga og gengið til liðs við Sao Paulo í heimalandinu. Þessi þrítugi leikmaður kom til Malaga síðastliðið sumar eftir að hafa yfirgefið Borussia Dortmund.
Amoroso byrjaði ágætlega hjá Malaga en datt síðan út úr liðinu á síðari hluta leiktíðarinnar eftir komu Fernando Baiano til liðsins. Amoroso fékk nánast ekkert að spila undir lok tímabilsins og var að reyna að semja við lið í Katar í mars en það gekk ekki upp.
Hann hefur nú samið við Sao Paulo og mun án efa styrkja liðið mikið.
Hann hefur nú samið við Sao Paulo og mun án efa styrkja liðið mikið.
