Fotbolti.net
22.06.25 - 11:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í samstarfi við styrktaraðila

Andrea Rut spáir í 12. umferð Bestu deildarinnar

Andrea Rut spáir í 12. umferð Bestu deildarinnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tólfta umferð Bestu deildar karla fer fram á sunnudag og mánudag. Þrír leikir fara fram á sunnudag og hefst umferðin með leik FH og Vestra á Kaplakrikavelli. Þrír leikir fara svo fram á mánudagskvöld.

Andrea Rut Bjarnadóttir, leikmaður toppliðs Breiðabliks í Bestu deild kvenna, spáir í leiki umferðarinnar.

Hún fylgir á eftir Hinriki Harðarsyni sem var með tvo leikir rétta, og báða hárrétta, þegar hann spáði í 11. umferðina. Svona spáir Andrea leikjunum:
FH 2- 2 Vestri (sun, 14:00)
Þetta verður hörkuleikur, Vestri búnir að gera flotta hluti í deildinni en FH alltaf líklegir í krikanum. Ég spái þessum leik því 2-2 jafntefli

KA 1 - 3 Víkingur R. (sun, 19:15)
KA alltaf sterkir á heimavelli en ég held þeir muni ekki ráða við Víkingana svo ég spái þessum leik 1-3 fyrir Víkingum.

ÍA 1- 1 Stjarnan (sun, 19:15)
Búið að vera mikið bras á Skagamönnum í deildinni og þurfa stig. Held því að þetta gæti verið jafn leikur og spái því 1-1 jafntefli.

ÍBV 2 - 1 Afturelding (mán, 18:00)
Verður lokaður og jafn leikur, en held samt að ÍBV taki þetta á lokamínútum leiksins 2-1

Valur 3 - 4 KR (mán, 19:15)
Þetta verður skemmtilegur og opin leikur, mikið af mörkum. Ég spái því að KR taki þetta 3-4.

Breiðablik 2 - 0 Fram (mán, 19:15)
Mínir menn í Blix vinna þennan leik örugglega 2-0 á heimavelli, Tobias og Aron Bjarna með mörkin.

Fyrri spámenn:
Eggert Aron (5 réttir)
Aron Guðmunds (4 réttir)
Atli Barkar (4 réttir)
Maggi Matt (4 réttir)
Eyþór Aron Wöhler (3 réttir)
Þór Llorens (3 réttir)
Hinrik Harðar (2 réttir)
Einar Jónsson (2 réttir)
Halldór Smári (2 réttir)
Fanndís Friðriks (2 réttir)
Kári Sigfússon (1 réttur)

Stöðuna í deildinni má sjá neðst og umræðu um Bestu deildina má nálgast hér að neðan.
FH alltaf líklegir í Krikanum.

FH alltaf líklegir í Krikanum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Setur Aron gegn Fram?

Setur Aron gegn Fram?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskiptin á Skaganum

Innkastið - Fyrsti hausinn fokinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.