Fotbolti.net
22.07.05 - 18:23
Magnús Már Einarsson

Brynjar Björn til Reading (Staðfest)

Brynjar Björn til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Brynjar Björn Gunnarsson hefur gengið til liðs við Reading frá Watford fyrir óuppgefna upphæð. Þessi 29 ára miðjumaður hefur gert tveggja ára samning við Reading.
Brynjar Björn mun hitta fyrir hjá Reading varnarmanninn Ívar Ingimarsson en liðið var nálægt því að komast í umspilið í ensku 1.deildinni á síðustu leiktíð.

Brynjar Björn vakti athygli hjá liðum í ensku úrvalsdeildinni síðastliðinn vetur en hann lék alls 36 leiki fyrir Watford og stóð hann sig vel í þeim. Brynjar Björn sem er íslenskur landsliðsmaður hefur einnig leikið með Stoke og Nottingham Forrest í Englandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.