22.07.05 - 18:31
Magnús Már Einarsson
Karadas og Westerveld til Portsmouth (Staðfest)

Karadas tekur flugið.

Karadas tekur flugið.

Portsmouth hefur fengið norska sóknarmanninn Azar Karadas á láni frá Benfica og þá hefur enska liðið einnig gengið frá samningum við markvörðinn Sander Westerveld.
Karadas sem er 23 ára er fyrrum leikmaður Brann og Rosenborg en hann skorað fjögur mörk í aðeins tíu leikjum með Benfica á síðustu leiktíð. Portsmouthmenn telja hann passa vel í enska boltann en standi þessi sóknarmaður sig vel frá liðinu geta þeir keypt hann frá Benfica samkvæmt ákvæði í lánssamningnum.
Westerveld samdi við Portsmouth og stóðst læknisskoðun í dag en hann kemur frítt eftir að hafa leikið með Mallorca á síðustu leiktíð. Þessi þrítugi leikmaður lék á sínum tíma með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og þá hefur hann einnig spilað fyrir Real Sociedad.
Portsmouth hefur ákveðið að semja við Westerveld þar sem liðið hefur látið Shaka Hislop fara og þá hefur Kostas Chalkias ekki staðið undir væntingum en Jamie Ashdown er sem stendur aðalmarkvörður liðsins.