Fotbolti.net
22.07.26 - 17:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arnari leið betur eftir að hafa talað við Sverri - „Ein af ráðgátum fótboltans"

Sverrir Ingi sleit krossband í leik með Panathinaikos í síðustu viku.

Sverrir Ingi sleit krossband í leik með Panathinaikos í síðustu viku.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
„Fyrsta hugsun var sú að mér þótti þetta náttúrulega hrikalega leiðinlegt fyrir hann. Hann er mikill keppnismaður og mikill landsliðsmaður. Hann hefur örugglega séð fram á góða tíma líka með sínu félagsliði, Jacob Neestrup tekinn við liðinu og Sverrir var búinn að eiga mjög gott undirbúningstímabil og var í góður standi," segir landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson við Fótbolta.net.

Sverrir Ingi Ingason, leikmaður Panathinaikos í Grikklandi og lykilmaður í landsliðinu, sleit krossband í hné á dögunum og verður frá fram á næsta ár vegna meiðslanna.
„Mér leið betur eftir að hafa talað við Sverri, hann var hrikalega gíraður. Sem betur fer voru þetta hrein slit, ekkert annað sem meiddist með, þau eru nógu erfið fyrir ein og sér, en hann er mikill karakter og ætlar sér að vera kominn aftur á völlinn áður en tímabilinu lýkur. Ég vonast svo til þess að hann verði kominn í gott stand áður en undankeppnin fyrir EM hefst á næsta ári."

„Við höfum spilað mikið af vináttuleikjum undanfarið sem hefur gefið okkur færi til að breyta til og Sverrir var ekki með í síðasta glugga (gegn Argentínu og Japan). Þá spilaði Daníel Leó (Grétarsson) i hans stöðu og á móti Japan vorum við að spila með 'hybrid' vörn; Stefán Teitur (Þórðarson) var líka í miðverðinum í fimm manna línu. Við höfum verið að prófa okkur áfram undanfarið, þetta er svolítið fíllinn í herberginu sem þarf að takast á við fyrr frekar en seinna að bestu varnarmennirnir okkar eru engin unglömb lengur."


Daníel Leó hefur verið í stóru hlutverki í liðinu og Hörður Björgvin Magnússon er annar augljós kostur í hjarta varnarinnar. Báðir eru þeir örvfættir. Sér Arnar fyrir sér möguleikann á því að vera með tvo örvfætta miðverði?

„Já, ég get alveg séð það. Þetta er ein af ráðgátum (e. enigma) í fótboltans, það þykir ekkert eðlilegra en að vera með tvo réttfætta menn í hafsentastöðunum en svo kemur fum og fát þegar spyrst að það séu tveir örvfættir, ég hef aldrei skilið af hverju það er. Verandi örvfættur sjálfur þá vil ég hag örvfættra sem mestan í heiminum," segir Arnar á léttu nótunum. „Þeir spiluðu báðir á móti Japan og Argentínu og stóðu sig bara mjög vel. Það er ekkert útilokað í þeim efnum."

„Við erum að fara inn í mót sem við ætlum okkur að vinna í haust. Það er þvílíkt tækifæri að geta tekið leiðina sem Svíarnir tóku; að vera nánast öruggir í umspil með því að vinna C-deildina í Þjóðadeildinni. Það er ólíklegt að það verði farið í einhverja tilraunastarfsemi í þeim leikjum."

„Það er líka eðli fótboltans að það munu einhverjir aðrir stíga upp þegar tímabilið í haust byrjar, leikmenn sem þyrfti þá að skoða betur."


Hvernig líður með stöðuna heilt yfir á landsliðinu, hafa verið einhverjar hreyfingar milli félaga hjá leikmönnum í sumar sem þú ert ánægður með?

„Mér finnst einhvern veginn allir vera á nokkuð góðum stað. Menn eru að koma til baka úr meiðslum og hafa fengið gott undirbúningstímabil. Eftir að ég tók við liðinu var erfitt fyrstu mánuðina að sætta sig við að 5-10% af leikmönnum sem eru annað hvort að ströggla með form eða fá lítið að spila. Það er bara eðli Íslands, við erum ekki stærsta þjóð í heiminum."

„Áður en Sverrir meiddist þá fannst mér allir vera á nokkuð góðum stað. Höddi var búinn að finna nýtt félag (fór frá Levadiakos til Atromitos), Hjörtur (Hermannsson) var kominn til Gautaborgar (frá Volos), Orri (Steinn Óskarsson) var kominn á fullt og Andri Lucas (Guðjohnsen) byrjaður að spila með Blackburn. Þetta leit allt vel út."

„Það eru alltaf 1-2 mál sem þarf að fylgjast sérstaklega með, en svo eru sum tilvik þar sem það skiptir litlu máli þótt menn séu lítið að spila með félagsliði því þeir skila alltaf sínu með landsliðinu."

„Ég er alltaf að fylgjast með, við höfum prófað mikið af leikmönnum, margir hafa staðið sig virkilega vel í vináttuleikjunum og gera sterkt tilkall til að vera í hópnum í haust. Haustglugginn verður fróðlegur að mörgu leyti,"
segir Arnar.

Næstu leikir Íslands verða í Þjóðadeildinni í lok september og byrjun október, fjórir leikir í sama glugga. Ísland mætir þá Eistlandi heima og að heiman, Lúxemborg ytra og Búlgaríu heima í riðli 4 í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Arnar Gunnlaugsson: Við erum að fara inn í mót sem við ætlum okkur að vinna í haust

Arnar Gunnlaugsson: Við erum að fara inn í mót sem við ætlum okkur að vinna í haust

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hörður Björgvin og Daníel Leó gætu spilað saman í hjarta varnarinnar.

Hörður Björgvin og Daníel Leó gætu spilað saman í hjarta varnarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska liðið kemur næst saman í september.

Íslenska liðið kemur næst saman í september.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Orri Steinn missti af nokkuð stórum hluta af síðasta tímabili vegna meiðsla.

Orri Steinn missti af nokkuð stórum hluta af síðasta tímabili vegna meiðsla.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.