22.10.26 - 21:52
Ívan Guðjón Baldursson
Christie: Vorum í 17. sæti í League One

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn Ryan Christie svaraði spurningum eftir 3-0 sigur Bournemouth gegn AC Milan í deildarkeppni Evrópudeildarinnar fyrr í kvöld.

TENGT EFNI
Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth
Christie var himinlifandi að leikslokum og benti á að félagið hafi setið neðarlega í League One deildinni, þeirri þriðju efstu í enska deildakerfinu, fyrir svo lítið sem 15 árum síðan.
„Hvílíkt kvöld! Við ræddum fyrir leikinn að þetta yrði sérstakt kvöld fyrir klúbbinn og sigurinn gerði þetta enn sætara. Það er svo skemmtileg lífsreynsla að spila í Evrópu og ég er þakklátur öllum í kringum félagið. Stuðningsmenn hafa verið frábærir og félagið líka í allri umgjörð og undirbúningi. Við erum á góðu skriði og verðum að halda svona áfram," sagði Christie, en liðið er núna búið að vinna þrjá leiki í röð í öllum keppnum án þess að fá mark á sig.
„Þetta er risastórt fyrir félagið og fyrir stuðningsmennina. Það var einhver sem sagði mér í dag að fyrir 15 árum síðan vorum við í 17. sæti í League One deildinni. Árangurinn sem félagið hefur náð síðan þá er ótrúlegur og stór hluti stuðningsmanna hefur verið að fylgjast með liðinu allan þennan tíma. Það gerir Evrópukvöldin sérstakari og sérstaklega svona sæta sigra gegn stórveldum.
„Við erum stoltir af okkar frammistöðu og förum inn í helgina fullir sjálfstrausts."
Bournemouth heimsækir Manchester United um helgina.
Til gamans má geta að Justin Kluivert skoraði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu, en hann er sonur Patrick Kluivert sem lék fyrir AC Milan tímabilið 1997-98.
Tveimur árum fyrir félagaskiptin til Milan skoraði Patrick Kluivert sigurmarkið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, þegar Ajax lagði Milan að velli 1995.