Lið vikunnar í enska - Kane og Costa fremstir

Markvörður: Jordan Pickford (Sunderland) - Sunderland vann 3-0 sigur gegn Hull í sex stiga fallbaráttuslag.

Mynd: Getty Images

Hægri bakvörður: Victor Moses (Chelsea) - Hefur verið frábær sem vængbakvörður í 3-4-3 kerfi Chelsea.

Mynd: Getty Images

Miðvörður: Virgil Van Dijk (Southampton) - Geggjaður í hjarta varnarinnar í markalausu jafntefli gegn Liverpool.

Mynd: Getty Images

Miðvörður: Joel Matip (Liverpool) - Heldur áfram að vera öflugur í varnarlínu Liverpool.

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörður: Nathan Ake (Bournemouth) - Spilaði frábærlega í vörn Bournemouth gegn Stoke og skoraði eina mark leiksins.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Yaya Toure (Manchester City) - Manstu eftir þessum? Lék sinn fyrsta deildarleik með City síðan í maí. Skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri gegn Crystal Palace.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Harry Winks (Tottenham) - Skoraði í sigri gegn West Ham. Þessi tvítugi strákur er heldur betur lofandi.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: : Juan Mata (Manchester United) - Skoraði gegn Arsenal með laglegum hætti.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Victor Anichebe (Sunderland) - Samstarf hans og Jermain Defoe hefur svo sannarlega verið að bera ávöxt að undanförnu. Skoraði tvö gegn Hull.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Harry Kane (Tottenham) - Kom til bjargar gegn West Ham og tryggði stigin þrjú með tveimur mörkum í blálokin.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Diego Costa (Chelsea) - Heldur áfram að skora og skora. Var með sigurmarkið gegn Middlesbrough.

Mynd: Getty Images




