Jose Mourinho, stjóri Roma á Ítalíu, var gífurlega sáttur eftir sigur liðsins gegn Genoa í gær.
Það var óvænt hetja í leiknum því hinn 18 ára gamli Felix Afena-Gyan kom inn af bekknum í seinni hálfleik og skoraði bæði mörkin í 0-2 sigri.
Hann fagnaði með því að fara upp að Mourinho og faðma hann. Sá 'sérstaki' var spurður út í fagnið sérstaklega eftir leikinn.
„Ég lofaði að kaupa handa honum skó sem kosta 800 evrur ef hann skoraði. Hann kom upp að mér og passaði upp á að ég myndi ekki gleyma þessu," sagði Mourinho.
„Ég mun fara í fyrramálið og kaupa þá. Unglingaliðið mun spila annað kvöld, en hann mun ekki spila þar."
Athugasemdir