Fotbolti.net
22.11.26 - 10:21
Brynjar Ingi Erluson

Endurnýja Fernandes og Amorim kynnin?

Fernandes til Milan?

Fernandes til Milan?

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins á þessum ágæta sunnudegi og það er af nógu að taka.
Ítalska félagið AC Milan fylgist náið með stöðu portúgalska miðjumannsins Bruno Fernandes (32) hjá Manchester United, en hann hefur enn ekki náð samkomulagi við enska félagið um nýjan samning. Ruben Amorim, fyrrum stjóri Man Utd, er þjálfari Milan. (Corriere dello Sport)

Man Utd ætlar að berjast við Tottenham um króatíska framherjann Igor Matanovic (23) í janúar, en hann leikur með Freiburg í Þýskalandi og er metinn á um 50 milljónir punda. (Goal)

Norski miðjumaðurinn Martin Ödegaard (27) og þýski framherjinn Kai Havertz (27) eiga báðir átján mánuði eftir af samningum sínum við Englandsmeistara Arsenal, en viðræður um nýja samninga eru ekki enn hafnar. (Standard)

Tyrkneska félagið Trabzonspor hefur endurvakið áhuga sinn á brasilíska framherjanum Richarlison (29), en Tottenham vill fá um tíu milljónir punda fyrir hann. (The i Paper)

Juventus vinnur að því að gera félagaskipti þýska framherjans Nick Woltemade (24) frá Newcastle United varanleg og gæti verið tilbúið að senda Francisco Conceicao (23) í hina áttina. (Gazzetta dello Sport)

Enski vængmaðurinn Jack Grealish (31) er ekki á óskalista skoska félagsins Celtic, en mörg önnur félög hafa augastað á honum næsta sumar þegar samningur hans við Manchester City rennur út. Grealish er sem stendur á láni hjá Everton. (Football Insider)

Callum Hudson-Odoi (26), vængmaður Nottingham Forest, er á óskalista ítalska félagsins Roma fyrir félagaskiptagluggann í janúar. (Teamtalk)

Úrúgvæski varnarmaðurinn Ronald Araujo (27) segir of snemmt að velta því fyrir sér hvort lánssamningi hans hjá Liverpool verði breytt í varanleg félagaskipti frá Barcelona. (Athletic)

Barcelona hefur hins vegar gefið Liverpool grænt ljós á að ganga frá kaupunum fyrir 47 milljónir punda. (Mirror)

Mikey Moore (19), framherji Tottenham, mun ekki snúa fyrr til félagsins úr láni sínu hjá Köln í Þýskalandi, þar sem ekkert ákvæði er í lánssamningnum sem gerir Tottenham kleift að kalla hann til baka fyrir lok lánstímans. (Talksport)

Tottenham er einnig komið í baráttuna við Juventus, Como og Galatasaray um Hakan Calhanoglu (32), leikmann Inter og fyrirliða tyrkneska landsliðsins, en hann er enn í viðræðum við ítalska félagið um nýjan samning. (Tuttomercato)
Havertz og Ödegaard á förum frá Arsenal?

Havertz og Ödegaard á förum frá Arsenal?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.