22.11.26 - 10:24
Brynjar Ingi Erluson
Hólmbert skoraði í endurkomunni

Hólmbert var á skotskónum með Gwangju

Mynd: Gwangju FC

Hólmbert var á skotskónum með Gwangju

Mynd: Gwangju FC
Hólmbert Aron Friðjónsson sneri aftur á völlinn með suður-kóreska úrvalsdeildarliðinu Gwangju í morgun þegar liðið vann 4-2 sigur á Bucheon í fallumspilinu.
Framherjinn hafði misst af síðustu fimm leikjum Gwangju en var kominn aftur í byrjunarliðið í dag og lét strax til sín taka. Hann minnkaði muninn í 2-1 á 37. mínútu og hóf þar með endurkomu Gwangju, sem hefur nú unnið þrjá af síðustu sex leikjum sínum og aðeins tapað einum.
Tvær umferðir eru eftir af fallumspilinu og er þegar ljóst að Gwangju mun hafna í botnsætinu. Góðu fréttirnar fyrir Hólmbert og félaga eru hins vegar þær að liðið sleppur við beint fall.
Ástæðan er nokkuð sérstök. Gimcheon Sangmu, sem er svokallað herlið, mun ekki leika áfram í efstu deild þar sem samningur borgarinnar Gimcheon við suður-kóreska herinn rennur út eftir tímabilið.
Ef herinn ákveður að stofna nýtt lið, eða borgaryfirvöld í Gimcheon koma á fót nýju félagi, mun það hefja keppni í B-deildinni.
Þetta þýðir að Gwangju sleppur við beint fall þrátt fyrir að enda á botninum og fær þess í stað tækifæri til að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni í umspili.
Þar verður leikið heima og að heiman í næsta mánuði.