Fotbolti.net
22.11.26 - 19:19
Ívan Guðjón Baldursson

Mainoo: Þetta var aldrei rautt spjald

Mainoo: Þetta var aldrei rautt spjald
Canon

Mynd: EPA

Kobbie Mainoo miðjumaður Manchester United er ekki sáttur með stóra dómaraákvörðun sem breytti leiknum þegar Rauðu djöflarnir töpuðu 4-0 gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd
TENGT EFNI

England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd

Leny Yoro fékk beint rautt spjald fyrir brot sem aftasti varnarmaður á áttundu mínútu, en Mainoo telur að Alexander Isak sem var sloppinn í gegn hafi ekki verið með stjórn á boltanum.

„Mér líður eins og leikurinn hafi verið tekinn úr okkar höndum út af þessu rauða spjaldi sem átti ekki að vera rautt. Við verðum að þjappa okkur saman því það er mikið af erfiðum leikjum framundan, við megum ekki dvelja of lengi á þessu tapi. Við þurfum að nýta sársaukann til að bæta okkur í næstu leikjum," sagði Mainoo.

„Þetta er aldrei rautt spjald, boltinn var svo gott sem kominn til markmannsins! Það er nógu erfitt að heimsækja Anfield, hvað þá einum leikmanni færri. Það gerir hlutina tífalt erfiðari. Við lögðum okkur fram allt til síðustu mínútu og við verðum að halda áfram að berjast til að snúa genginu við."

Man Utd er í næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar með 8 stig eftir 11 umferðir.
Mainoo: Þetta var aldrei rautt spjald
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+721
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-88
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.