Danny Ings er ekki á förum frá Southampton í janúarglugganum að sögn Martin Semmens sem er stjórnarformaður félagsins.
Tottenham hefur verið orðað við Ings sem er 28 ára gamall og hefur skorað sjö deildarmörk á tímabilinu.
Semmens segir að það sé vilji hjá Southampton að framlengja samning Ings sem rennur út eftir 18 mánuði.
„Samræðurnar hafa haldið áfram með Danny og þær hafa verið 100 prósent fagmannlegar," sagði Semmens.
„Danny er mjög ánægður hérna og vill spila áfram fyrir okkur og við njótum þess að hafa hann."
„Danny er einbeittur á að spila leiki fyrir okkur og vill ekki tala um einhvern framtíðarsamning."
Athugasemdir