Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 23. janúar 2022 13:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hefur logið til um aldur um árabil - Porto vill losna við hann
Mynd: Newcastle
Hinn 27 ára gamli Chancel Mbemba er á förum frá Porto þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.

Orðrómur kom upp fyrir nokkrum árum að hann væri að ljúga til um aldur en hann hafði sagt vinum sínum að hann væri fæddur árið 1990 en ekki 1994.

Ekki nóg með það heldur hafa komið upp sögur um fjögur mismunandi fæðingarár, það elsta árið 1988 sem þýðir að hann væri 33 ára í dag.

Hann gekk til liðs við Newcastle árið 2013 og lék yfir 50 leiki fyrir félagið á fimm árum. Í læknisskoðuninni fór hann í rannsókn sem leiddi í ljós að hann væri í raun fæddur árið 1994.

Þá voru þessar sögusagnir kramdar í bili að minnsta kosti því nú hafa þær sprottið upp aftur og vegna þess er talið að Porto muni ekki semja við hann. AC Milan hafði áhuga á leikmanninum en sá áhugi hefur dvínað eftir að sögur fóru á kreik aftur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner