Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 23. mars 2023 23:48
Brynjar Ingi Erluson
Cancelo um Nagelsmann: Þetta kom mér í opna skjöldu
Mynd: Getty Images
Joao Cancelo, leikmaður Bayern München, segir það hafa komið sér í opna skjöldu að Julian Nagelsmann hafi verið látinn fara frá félaginu.

Fjölmiðlar í Þýskalandi og einn áreiðanlegasti blaðamaður heims, Fabrizio Romano, fullyrða það að Nagelsmann hafi verið látinn taka poka sinn hjá Bayern.

Thomas Tuchel er að taka við liðinu samkvæmt sömu blaðamönnum en þessar fréttir komu Cancelo á óvart sem mætti á blaðamannafund hjá portúgalska landsliðinu eftir 4-0 sigurinn á Liechtenstein í kvöld.

„Ég vissi þetta ekki. Þetta kemur mér í opna skjöldu,“ sagði Cancelo á blaðamannafundinum.

Herbert Hainer, forseti Bayern, sagði á mánudag að það væri ekki á döfinni að láta Nagelsmann fara. Vísaði hann sögusögnum til föðurhúsanna en eitthvað virðist hafa breyst á örfáum dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner