Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 11:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gríðarlegt áfall fyrir Real Madrid
Mynd: EPA
Eder Militao og Arda Guler þurftu að fara af velli vegna meiðsla í 2-1 sigri Real Madrid í gær og verða líklega frá út tímabilið.

Militao haltraði af velli í fyrri hálfleik en það var óvænt að Guler var ekki með á æfingu í dag. Þeir fóru í myndatöku í dag og meiðsli á fæti komu í ljós hjá báðum.

Þetta er mikið áfall fyrir spænska liðið sem er í baráttu við Barcelona um spænska titilinn. Liðið er níu stigum á eftir erkifjendum sínum í baráttunni þegar sex umferðir eru eftir.

Tímabilið hefur verið mikil vonbrigði en liðið tapaði gegn Bayern í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í síðustu viku eftir ótrulegan leik.


Slapp
banner
banner