Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 23. apríl 2026 00:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Sölvi Geir: Stjarnan farin að líkjast KR
,,Hrikalega skemmtilegt að koma í Víkina og spila þegar stemningin er mikil"
Sölvi Geir tók við sem aðalþjálfari Víkings snemma á síðasta ári og gerði liðið að meisturum í fyrra.
Sölvi Geir tók við sem aðalþjálfari Víkings snemma á síðasta ári og gerði liðið að meisturum í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Óvíst hvort Emil verði með á morgun.
Óvíst hvort Emil verði með á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birnir lék með Víkingi 2022-23 og þá var Sölvi Geir aðstoðarþjálfari Víkings.
Birnir lék með Víkingi 2022-23 og þá var Sölvi Geir aðstoðarþjálfari Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Örvar lék með Víkingi 2017-2019.
Örvar lék með Víkingi 2017-2019.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Vonandi fáum við lið sem mætir í pressu á móti okkur' - Sölvi segir að Stjarnan sé sóknarsinnaðri en á síðasta tímabili. Jökull Elísabetarson er þjálfari liðsins.
'Vonandi fáum við lið sem mætir í pressu á móti okkur' - Sölvi segir að Stjarnan sé sóknarsinnaðri en á síðasta tímabili. Jökull Elísabetarson er þjálfari liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi er ánægður með spilamennskuna í fyrstu leikjunum.
Sölvi er ánægður með spilamennskuna í fyrstu leikjunum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Nokkuð margir Víkingar mættu og studdu vel við liðið fyrir norðan.
Nokkuð margir Víkingar mættu og studdu vel við liðið fyrir norðan.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Svona var stemningin í stúkunni gegn Blikum.
Svona var stemningin í stúkunni gegn Blikum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Mér líst mjög vel á leikinn gegn Stjörnunni, Stjarnan er búin að ná í tvö góð úrslit, miklir markaleikir og það sést að Stjörnumenn eru byrjaðir að spila talsvert öðruvísi en þeir gerðu í fyrra. Þeir eru orðnir meira sóknarsinnaðir, setja meiri þunga í sóknina. Þeir eru líka búnir að fá inn góða leikmenn sem gera sóknina þeirra ennþá sterkari."

Þetta segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, en framundan er stórleikur Víkings og Stjörnunnar á Víkingsvelli. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

„Þeir fá líka mörg færi á sig, mikið af skotum. Þeir eru að líkjast meira og meira því hvernig KR spilar. Þetta verður skemmtilegt, vonandi fáum við lið sem mætir í pressu á móti okkur - ekki það að mér finnist eitthvað að hinu. Mér finnst skemmtilegt að mæta liðum í 'low-block', það er skák og þolinmæði að brjóta niður þannig lið. Það er skemmtilegt að fá aðeins opnari leik, verður meiri ákefð og að er gaman að taka þátt í því."

Munur á Emil og Andra
Emil Atlason, aðalframherji Stjörnunnar, er tæpur fyrir leikinn. Er munur að mæta Emil eða Andra Rúnari Bjarnasyni, eða er það svipað?

„Það er alveg munur á því. Það er margt líkt með þeim báðum, eru góðir að halda í bolta, góðir inni í teignum. Það er aðallega hraðinn og svæðið fyrir aftan varnirnar þar sem er munur á þeim. Andri er líka klókur að tímasetja hlaupin sín og að vera á blindu hlið varnarmanna; klókur leikmaður. Þeir hafa báðir sína kosti og galla, eru báðir virkilega góðir og við þurfum að hafa varann á gegn þeim."

Þykir vænt um þessa stráka
Er eitthvað almennt í leik Stjörnunnar sem þú vilt reyna taka frá þeim?

„Við þurfum eins og alltaf að vera þéttir varnarlega, sama hvar við erum á vellinum. Það verður að vera stutt á milli lína, halda pressu á boltamanni og verjast sem ein liðsheild. Þetta eru áherslur sem vinnum alltaf út frá."

„Stjarnan er með mjög skemmtilega sóknarlínu sem við þurfum að passa mjög vel. Það vita allir hvaða eiginleika Birnir Snær býr yfir, þeir eru með Örvar (Eggertsson), Benedikt Warén og hörku miðjumenn sem vilja allir fara í sókn. Við þurfum að vera með góðan talanda og vera einbeittir í okkar varnarleik. Þetta er hörku sóknarlið og við þurfum að vera á okkar besta degi til að stoppa þá."

„Aftur á móti eru fleiri möguleikar í skyndisóknum og í sóknarleik okkar heldur en hefur kannski hefur verið í síðustu leikjum. Við þurfum að vera á tánum og nýta möguleikana sem við fáum."


Örvar og Birnir hafa verið hjá Víkingi. Fylgjast Víkingar með þeim? Er skrítið að sjá Birni spila með öðru liði í deildinni?

„Við fengum svona aðeins að kynnast því í fyrra þegar hann var í KA að sjá hann spila fyrir annað félag. Við fylgjumst með, það er auðvitað orðið dálítið langt síðan Örvar var hjá okkur, en ég þekki hann og spilaði með honum."

„Ég lagði mikla vinnu í Bidda á sínum tíma í að kenna honum að spila varnarleik. Ég fylgdist líka vel með honum erlendis. Manni þykir alltaf vænt um þessa stráka, en svo er þetta bara fótboltaleikur og við mætum til þess að vinna hann. Þeir eru andstæðingar í leiknum og við tökum á þeim eins og öðrum."


„Ekki hægt að biðja um mikið meira" úr fyrstu leikjunum
Víkingur er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina í deildinni. Meistararnir gerðu jafntefli við Breiðablik í fyrstu umferð og sigruðu svo KA síðasta föstudag. Ertu sáttur við leik liðsins í heildina, eða er eitthvað sem þú hugsar að væri hægt að gera betur?

„Ef þú ert 100% fullkomlega sáttur þá ertu á rangri hillu af því það er alltaf eitthvað sem þú getur tekið úr hverjum leik. Þú þarft að hugsa þannig að þú sért að leita leiða til að bæta liðið. Liðið getur átt mjög góðan leik en það verða alltaf atriði sem þú vilt gera ennþá betur."

„Ég er mjög sáttur með byrjunina hjá okkur. Maður notast oft við tölfræði til þess að sjá hvernig liðinu gengur, hvernig pressan er að ganga, færasköpunin og hvernig við höldum í boltann. Við erum búnir að skapa mikið af færum til þessa - flestu færin þegar ég skoðaði tölfræðina síðast - erum meira og minna með stjórn á leikjunum, fengið fæstu skotin á okkur í deildinni. Það er ekki hægt að biðja um mikið meira þegar þú ert við toppinn á helstu tölfræðilistum eftir leiki á móti jafnsterkum liðum og Breiðabliki og KA. Síðan eru það bara augnablik í leikjunum, hefði leikurinn gegn Blikum opnast meira ef við hefðum skorað fyrsta markið? Eina sem ég hefði viljað sjá er að við hefðum nýtt færin okkar betur sem við fáum. Þetta er bara partur af leiknum, það væri fínt að þessi færi sem við erum að fá detti í næsta leik."

„Við þurfum að halda áfram að spila massífan þéttan varnarleik. Það kannski gleymist í umræðunni - sem er miðuð við að við séum ekki að skora nóg - en að sama skapi erum við ekki að fá á okkur mörg færi sem er mjög jákvætt."


Stór hópur og of góðir leikmenn þurft að vera utan hóps
Sölvi hefur verið með 3-4 öfluga leikmenn, meiðslafría leikmenn, utan hóps í fyrstu tveimur leikjunum þar sem Víkingar eru með ansi mikla breidd og hafa úr mörgum leikmönnum að velja. Glugginn lokar eftir viku, er einhver pæling að lána einhvern leikmann fram að glugga?

„Nei, það eru engar pælingar af okkar hálfu. Við vitum að þurfum að vera með stóran og öflugan hóp. Mótið er rétt að byrja og ef allir eru heilir þá lendir það á því að menn sem eru of góðir til þess að vera fyrir utan hóps lenda samt í því að vera fyrir utan hóps. Við ætlum þessa leið í ár að vera með stóran hóp í ár og sjá hvert það leiðir okkur. Mér finnst við hafa verið skarpir í fyrstu leikjunum, verið flottir, ákefðin og einbeitingin hefur verið flott, og það er kannski líka út af því að það eru sterkir menn á bekknum og utan hóps sem eru að ýta við hvor öðrum. Það er ekkert sjálfgefið að vera á bekknum og það ýtir við mönnum. Mér finnst það hífa alla upp á hærra stig og það er jákvætt við þetta."

„En auðvitað er alltaf leiðinlegt að segja mönnum að þeir séu ekki að fara vera í hópnum. Það er mjög leiðinlegur partur af þessu þjálfaragiggi, en það er eitthvað sem við þurfum á að takast á við og reyna gera eins vel og við getum."


Þakklátur fyrir stuðninginn úr stúkunni
Það var hörkustemning hjá Víkingum gegn Blikum í fyrstu umferðinni og svo kom góður hópur Víkinga norður á Akureyri í síðustu viku.

„Ég býst við fullri stúku, þannig finnst mér stemningin í hverfinu og hjá Víkingum. Það er gaman að koma á leiki, það er mikið lagt í undirbúninginn fyrir leiki hjá ráðinu okkar, það eru allir að gera sitt besta og ennþá betur en við gerðum í fyrra, ekki verið að sofna á verðinum eða slakað á í þeim efnum."

„Stuðningsmennirnir eru búnir að vera heldur betur frábærir. Fyrsti leikurinn var geggjaður, vel mætt og vel látið í sér heyra. Það var svo extra gaman að sjá að þeir leggja líka á sig og fjölmenntu norður til að styðja okkur. Þetta hjálpast allt saman í stóru myndinni. Stuðningsmenn eiga stóran þátt í okkar velgengni síðustu ár með öflugum stuðningi. Ég held að það geti allir verið sammála mér í því að það er hrikalega skemmtilegt að koma í Víkina og spila þegar stemningin er mikil eins og hún er yfirleitt. Vonandi heldur það bara áfram og ég held að leikurinn á morgun verði ennþá meiri skemmtun. Ég hvet alla til þess að koma á völlinn, hvort sem það eru Stjörnumenn eða Víkingar, og styðja við liðin,"
segir Sölvi.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 2 2 0 0 8 - 4 +4 6
2.    Stjarnan 2 2 0 0 6 - 4 +2 6
3.    Breiðablik 3 1 2 0 2 - 1 +1 5
4.    Fram 2 1 1 0 6 - 4 +2 4
5.    Víkingur R. 2 1 1 0 3 - 1 +2 4
6.    Valur 2 1 0 1 3 - 3 0 3
7.    Þór 2 1 0 1 4 - 6 -2 3
8.    ÍA 3 0 2 1 4 - 5 -1 2
9.    FH 2 0 1 1 3 - 4 -1 1
10.    ÍBV 2 0 1 1 2 - 3 -1 1
11.    KA 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
12.    Keflavík 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
Slapp
banner
banner
banner