„Þetta var geggjað, frábær skalli hjá honum og að sama skapi frábær sending frá Ármanni,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, aðspurður um sigurmark Óskars Borgþórssonar í 3-2 sigri gegn Stjörnunni fyrr í kvöld.
Með sigrinum á Garðbæingum tylla Víkingar sér í 2. sæti deildarinnar með sjö stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Fótbolti.net ræddi við Sölva að leik loknum.
Með sigrinum á Garðbæingum tylla Víkingar sér í 2. sæti deildarinnar með sjö stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Fótbolti.net ræddi við Sölva að leik loknum.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 Stjarnan
„Ég er virkilega sáttur með þennan sigur. Þetta var erfiður leikur. Stjarnan er með hörkulið, með hörkusókn. Það var erfitt að díla við það.
Árni (Snær) getur pinnað hann hvert sem hann vill, við sáum það í fyrra marki þeirra. Við vissulega hefðum átt að gera betur í því, þetta var þröngt færi og ég held að Ingvar geti verið sammála mér í því að hann hefði átt að taka þetta.“
Engar áhyggjur af sektum
Stuðningsmenn Víkings kveiktu í tvígang á blysum fyrir aftan varamannabekkina eftir fyrstu tvö mörk liðsins.
Félagið var sektað vegna blysanotkunar í fyrstu umferð og sungu stuðningsmenn Víkings: „Sektið okkur núna“ og „Nafnlaus Mafía“ þegar blysin fóru á loft.
Sölvi segist ekki hafa áhyggjur af sektum þar sem kveikt var í blysunum fyrir utan leikvöllinn.
„Þetta truflaði mig ekki neitt. Ég veit ekki hvort að þetta titlist sem hluti af Kópavogi hérna fyrir aftan. Þetta er ekki inni á okkar svæði. Það er gaman að hafa blys; Þau gera stemninguna skemmtilegri. Vonandi leyfa þeir þessi blys. Miklu skemmtilegra að fá smá reyk og stemningu inn í þetta. Það er búin að vera frábær stemning hérna í fyrstu tveimur heimaleikjunum. Leyfið þessi blys, þetta skaðar ekki neinn.“
Þú ert þá ekki hræddur um að félagið fái sekt?
„Nei, við erum með öryggisgæslu allt hér í kring. Þetta er á öðru svæði en á leikvellinum. Þessi þarna girðing er meira að segja inni í Kópavogi. Þannig þetta eru einhverjir Blikar í Kópavoginum,“ sagði Sölvi léttur og hló.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.























