Fotbolti.net
23.05.14 - 22:54
Ingunn Hallgrímsdóttir

Ejub: Miklu betra fyrir okkur að spila á grasi

Auglýsing
Ejub: Miklu betra fyrir okkur að spila á grasi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ég er mjög sáttur við úrsltin, sérstaklega eftir að hafa lent 2-0 undir. Það er frábært að koma til baka og vinna leikinn,\" sagði Ejub Purisevic þjálfari Víkings Ólafsvík eftir 2-3 sigur á ÍA á Akranesi í kvöld.
Ólsarar unnu 5-0 á Akranesi þegar liðin mættust í Pepsi-deildinni í fyrra.

,,Við ætluðum alltaf að vinna leikinn en skagamenn eru með gott lið og góða umgjörð. Það er ekki sjálfsagt fyrir neitt lið að vinna leiki. Við komum og reynum að spila fótbolta og gera okkar besta og sjá hvað verður. Við komum til baka eftir að hafa lent 2-0 undir og það er frábært.\"

Þetta var fyrsti leikur Víkinga á grasi í sumar en þeir töpuðu í Akraneshöllinni heimaleik gegn Selfossi í síðustu umferð.

,,Fyrir okkur er miklu betra að spila á grasi en gervigrasi. En það var ekki gervigrasinu að kenna þegar við töpuðum síðast.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.