Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 23. maí 2022 12:00
Elvar Geir Magnússon
Valdi fleiri úr Liverpool en Man City í lið ársins
Mynd: BBC
Garth Crooks sér um að velja lið vikunnar fyrir BBC en nú þegar deildinni er lokið valdi hann úrvalslið tímabilsins.

Þrátt fyrir að Manchester City vann deildina þá eru fleiri fulltrúar frá Liverpool í liði ársins hjá Crooks.

Alls eru fimm Liverpool leikmenn; markvörðurinn Alisson, varnarmaðurinn Virgil van Dijk, bakvörðurinn Trent Alexander-Arnold og sóknarmennirnir Mo Salah og Sadio Mane.

Ruben Dias, Kevin De Bruyne og Joao Cancelo eru fulltrúar Manchester City í liði ársins.

Antonio Rudiger í Chelsea, Christian Eriksen í Brentford og Son Heung-min í Tottenham eru einnig í liðinu.

Vantar einhvern í liðið? Láttu vita í ummælakerfinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner