Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
   lau 23. maí 2026 23:43
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Dýr mistök dómara á Egilsstöðum - Jordan hetjan í Sandgerði
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Reynir Sandgerði
Það var nóg um að vera í 3. deildinni í gær þegar topplið Tindastóls missteig sig í fyrsta sinn á tímabilinu.

Tindastóll heimsótti afar ungt lið Hattar í fjórðu umferð og lenti í vandræðum. Leiknum lauk með markalausu jafntefli en heimamenn voru óheppnir að fá ekki dæmda vítaspyrnu seint í leiknum.

„Dómararnir sem annars voru fínir gerðu dýr mistök í seinni hálfleik þegar þeir færðu vítaspyrnu sem þeir höfðu dæmt Hetti í vil út fyrir teig. Skrýtin ákvörðun því allir á vellinum og vídeó upptaka sýndi brotið langt fyrir innan, en bara mannleg mistök og það er eins og það er," segir í Facebook færslu Hattar.

Tindastóll er því með tíu stig eftir fjórar umferðir á meðan Höttur er með fimm stig.

Jordan Smylie var þá hetjan í Sandgerði þegar Reynir tók á móti KV. Staðan var 1-2 fyrir gestina úr Vesturbænum í leikhlé en Jordan snéri stöðunni við með tvennu í síðari hálfleik. Lokatölur 3-2.

Reynir er í öðru sæti með 9 stig og situr KV eftir með 6 stig.

Ýmir fór þá létt með Sindra á meðan Árbær og Augnablik gerðu sex marka jafntefli.

Höttur 0 - 0 Tindastóll

Reynir S. 3 - 2 KV
0-1 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('13 )
1-1 Ingólfur Sigurðsson ('15 )
1-2 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('25 )
2-2 Jordan Smylie ('53 )
3-2 Jordan Smylie ('65 )

Ýmir 4 - 0 Sindri
1-0 Hrannar Þór Eðvarðsson ('29 )
2-0 Breki Ottósson ('36 )
3-0 Lirim Ibrahimi ('54 )
4-0 Ásgeir Marteinsson ('86 )

Árbær 3 - 3 Augnablik
1-0 Jordan Chase Tyler ('2 )
1-1 Kristján Lúðvík Möller ('29 )
2-1 Olsi Tabaku ('45 )
2-2 Bjarki Viðar Björnsson ('74 )
2-3 Mikael Logi Hallsson ('90 )
3-3 Olsi Tabaku ('90 )

Slapp
banner