Fotbolti.net
23.05.26 - 22:35
Ívan Guðjón Baldursson

34 ára með samningstilboð frá Newcastle

Schär hefur verið frá keppni síðan hann lenti í slæmum ökklameiðslum í byrjun janúar. Hann fer ekki með Sviss á HM eftir að hafa lagt landsliðsskóna á hilluna eftir síðasta Evrópumót.

Schär hefur verið frá keppni síðan hann lenti í slæmum ökklameiðslum í byrjun janúar. Hann fer ekki með Sviss á HM eftir að hafa lagt landsliðsskóna á hilluna eftir síðasta Evrópumót.

Canon

Mynd: EPA

Svissneski varnarmaðurinn Fabian Schär er með samningstilboð á borðinu frá Newcastle United, en núverandi samningur hans við félagið rennur út í sumar.
Schär er 34 ára gamall og hefur spilað 251 leik á átta tímabilum í Newcastle. Hann tók þátt í 21 leik á meiðslahrjáðu tímabili sem lýkur á morgun en var fastamaður í byrjunarliðinu þegar hann var við góða heilsu.

Nýtt samningstilboð frá Newcastle er talið fela í sér launalækkun og breytist hlutverk Schär í hópnum þar sem hann getur ekki búist við að vera með fast sæti í byrjunarliðinu lengur.

Stjórnendur og þjálfarateymi Newcastle vonast til að Schar samþykki tilboðið enda hefur hann reynst mikilvægur hlekkur í liðinu á undanförnum árum.

„Við erum í viðræðum við Fabian og umboðsmanninn hans og vonumst eftir jákvæðri niðurstöðu. Við viljum halda honum, hann hefur verið frábær fyrir okkur," segir Eddie Howe þjálfari Newcastle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.