Fotbolti.net
23.05.26 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Antonio Conte fer frá Napoli eftir lokaumferðina

Antonio Conte fer frá Napoli eftir lokaumferðina
Canon

Mynd: EPA

Fótboltafréttamaðurinn traustverðugi Fabrizio Romano greinir frá því að þjálfarinn öflugi Antonio Conte mun yfirgefa Napoli í næstu viku.
Conte hefur verið við stjórnvölinn í tvö ár og er með eitt ár eftir af samningi en hefur fengið leyfi til að ganga frá borði. Napoli hefur samþykkt að binda enda á samning Conte og greina ítalskir fjölmiðlar frá því að hann muni taka við ítalska landsliðinu í annað sinn á þjálfaraferlinum.

Conte stýrði Napoli til Ítalíumeistaratitils á sínu fyrsta tímabili við stjórn og vann ítalska Ofurbikarinn á leiktíðinni sem er að líða.

Conte, sem er 56 ára og hefur meðal annars þjálfað Chelsea, Tottenham, Juventus og Inter, stýrði ítalska landsliðinu síðast fyrir EM 2016. Ítalir spiluðu mjög vel undir hans stjórn og voru óheppnir að detta úr leik gegn þáverandi heimsmeisturum Þýskalands eftir vítaspyrnukeppni í 8-liða úrslitum.

Napoli siglir lygnan sjó í öðru sæti ítölsku deildarinnar og tekur á móti Udinese í lokaumferðinni á morgun.

Ítalska þjóðin vonar innilega að Conte verði maðurinn til að koma landsliðinu aftur á HM eftir alltof langa fjarveru. Evrópumótið 2028 kemur þó á undan.

Líklegt að Conte hætti hjá Napoli og taki við Ítalíu
TENGT EFNI

Líklegt að Conte hætti hjá Napoli og taki við Ítalíu

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Antonio Conte fer frá Napoli eftir lokaumferðina
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.