Pep Guardiola segir að hann sjái eftir því að hafa kastað Joe Hart út úr liði Man City eftir að hann tók við árið 2016. Guardiola yfirgefur Man City eftir tímabilið eftir en hann var mjög hreinskilinn þegar hann tjáði sig um Hart í viðtali við Sky Sports.
Guardiola vildi fá markvörð sem var betri í fótunum og fékk Claudio Bravo frá Barcelona. Hart var þá til sölu og hann fór til Torino og West Ham á láni áður en hann var seldur til Burnley.
„Ég vil játa svolítið. Þegar maður tekur margar ákvarðanir gerir maður mistök. Það er ein eftirsjá sem ég hef falið djúpt inni í mér í mörg ár. Ég gaf Joe Hart ekki tækifæri til að sanna hversu góður markmaður hann var," sagði Guardiola.
„Ég hefði átt að gera það, Með fullri virðingu fyrir Claudio (Bravo) og Ederson sem kom inn, hann var mjög mikilvægur, en á þessu augnabliki hefði ég átt að hugsa: 'Joe, reynum þetta saman. Ef það gengur ekki þá breytum við.'"
„En þetta gerðist, stundum verður maður að taka ákvarðanir og stundum er ég ekki sanngjarn."


