Fotbolti.net
23.05.26 - 22:11
Ívan Guðjón Baldursson

Hellberg: Tvær erfiðustu vikur ferilsins

Hellberg: Tvær erfiðustu vikur ferilsins
Canon

Mynd: Middlesbrough

Sænski þjálfarinn Kim Hellberg var svekktur eftir afar naumt tap Middlesbrough gegn Hull City í úrslitaleik Championship deildarinnar í dag.
Middlesbrough fékk bestu færi leiksins en staðan hélst 0-0 allt þar til á 95. mínútu, þegar Oli McBurnie potaði boltanum í netið og tryggði afar dýrmætan sigur fyrir Hull.

„Tilfinningalega séð hafa þetta verið tvær erfiðustu vikur ferilsins, með allt sem er búið að gerast í kringum njósnamálið. Þetta er búið að vera verulega erfitt og krefjandi en það er engin afsökun, við vorum tilbúnir fyrir þennan leik. Hull skoraði eina markið og við verðum að óska þeim til hamingju," sagði Hellberg eftir tapið.

Frekari rannsókn á njósnamálinu
TENGT EFNI

Frekari rannsókn á njósnamálinu



„Strákarnir spiluðu nokkuð góðan leik en þetta var mjög jafnt og það var lítið sem skildi að á milli liðanna. Við nýttum góðu stöðurnar sem við komumst í ekki nægilega vel.

„Við stjórnuðum leiknum á löngum köflum og vorum frábærir varnarlega en það vantaði upp á sóknarleikinn. Við gerðum margt mjög vel en þeir skoruðu markið og fara héðan sem sigurvegarar.

„Ég er mjög vonsvikinn og sorgmæddur, tilfinningarnar mínar eru voðalega flatar eftir allt sem við lögðum í þetta tímabil. Þetta er mjög erfið stund fyrir mig, ég vildi óska þess að ég hefði fundið einhverja leið til að skora gegn þeim í þessum leik en það tókst ekki.

„Ég þarf að horfa innávið og reyna að verða betri eftir sumarfríið. Ég þarf að hjálpa leikmönnunum betur í ákveðnum aðstæðum, sérstaklega á svona viðkvæmum tímapunktum."


Middlesbrough tapaði upprunalega undanúrslitunum eftir framlengdan leik gegn Southampton en kærði leikinn og vann málið.

Vill taka Sunderland til fyrirmyndar: Þurfum nýja leikmenn
TENGT EFNI

Vill taka Sunderland til fyrirmyndar: Þurfum nýja leikmenn

Hellberg: Tvær erfiðustu vikur ferilsins
Canon

Mynd: Hammarby

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.