Fotbolti.net
23.05.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Joao Félix valinn besti leikmaður tímabilsins

Joao Félix valinn besti leikmaður tímabilsins
Canon

Mynd: EPA

Portúgalinn Joao Félix hefur verið valinn besti leikmaður deildartímabilsins í Sádi-Arabíu eftir að Al-Nassr tryggði sér langþráðan deildarmeistaratitil á dögunum.
Ronaldo líklegastur til að vera valinn leikmaður tímabilsins
TENGT EFNI

Ronaldo líklegastur til að vera valinn leikmaður tímabilsins



Búist var við að Cristiano Ronaldo yrði krýndur sem besti leikmaður tímabilsins en svo var ekki. Félix var bestur og Ronaldo næstbestur, en þar á eftir komu Rúben Neves, Ivan Toney og Julián Quinones.

Félix skoraði 20 mörk og gaf 13 stoðsendingar á sínu fyrsta deildartímabili í Sádi-Arabíu eftir félagaskipti frá Chelsea í fyrrasumar. Hann fer, ásamt Ronaldo og Neves, með portúgalska landsliðinu á HM í sumar.

Édouard Mendy, fyrrum markvörður Chelsea, var valinn sem besti markvörður tímabilsins fyrir frammistöðu sína með Al-Ahli. Hann hélt 14 sinnum hreinu og fékk aðeins 18 mörk á sig.

Jorge Jesus fráfarandi þjálfari Al-Nassr var valinn besti stjórinn og þá fengu tveir Sádar einnig verðlaun.

Musab Al-Juwayr var valinn besti heimamaður deildarinnar og er Abdulaziz Al-Elewa besti ungi leikmaðurinn.

Hættur hjá Al-Nassr: Kom hingað til að hjálpa Ronaldo
TENGT EFNI

Hættur hjá Al-Nassr: Kom hingað til að hjálpa Ronaldo

Joao Félix valinn besti leikmaður tímabilsins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.