Fotbolti.net
23.05.26 - 18:48
Ívan Guðjón Baldursson

Sigurður Bjartur hetjan - Logi Hrafn skoraði

Sigurður Bjartur hetjan - Logi Hrafn skoraði
Canon

Mynd: AD Merida

Sigurður Bjartur Hallsson var aðalmaðurinn í sigri Mérida í spænska boltanum í dag.
Sigurður Bjartur skoraði bæði mörk liðsins í sigri gegn varaliði Osasuna í lokaumferð deildartímabilsins í þriðju efstu deild á Spáni. Mérida endar um miðja deild með 52 stig eftir 38 umferðir.

Sigurður er 26 ára gamall og er núna kominn með 4 mörk í 17 deildarleikjum.

Logi Hrafn Róbertsson lék þá allan leikinn í tapi Varnamo í næstefstu deild í Svíþjóð. Hann skoraði eina mark liðsins í 3-1 tapi gegn toppliði Falkenberg

Varnamo er með 10 stig eftir 9 umferðir.

Gísli Gottskálk Þórðarson var ekki með Lech Poznan vegna meiðsla í því sem gæti reynst síðasti leikur danska þjálfarans Niels Frederiksen við stjórnvölinn, enda er hann eftirsóttur af ýmsum félögum úr Evrópu - meðal annars Watford.

Lech Poznan gerði jafntefli við Wisla Plock í dag og endar sem pólskur meistari með 60 stig úr 34 leikjum.

Að lokum lék Eyrún Embla Hjartardóttir fyrstu 70 mínúturnar í tapi hjá varaliði Häcken gegn toppliði Elfsborg í næstefstu deild í Svíþjóð.

Häcken B er án stiga eftir sjö umferðir.

Osasuna 1 - 2 Merida
0-1 Sigurður Bjartur Hallsson ('16)
1-1 A. Bonel ('40)
1-2 Sigurður Bjartur Hallsson ('49)
Rautt spjald: J. Areso, Merida ('74)

Falkenberg 3 - 1 Varnamo
1-0 T. Stalheden ('33)
2-0 O. Lindberg ('42)
2-1 Logi Hrafn Róbertsson ('73)
3-1 G. Aguda ('90)

Lech Poznan 2 - 2 Wisla Plock

Hacken B 0 - 1 Elfsborg
Sigurður Bjartur hetjan - Logi Hrafn skoraði
Canon

Mynd: Värnamo

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.