23.06.05 - 14:39
Magnús Már Einarsson
Regueiro til Valencia (Staðfest)

Mario Regueiro.

Mario Regueiro.

Valencia hefur fengið kantmanninn Mario Regueiro frítt frá Racing Santander. Hinn 26 ára gamli Regueiro skoraði 8 mörk á síðustu leiktíð fyrir Racing en samningur hans við liðið er að renna út.
Regueiro hafði meðal annars vakið athygli Manchester United en Valencia hefur tekist að krækja í kappann. Þá hefur Valencia einnig keypt framherjann David Villa frá Real Zaragoza eins og við greindum frá í gær.
Greinilegt er að Valencia ætlar sér að bæta upp fyrir vonbrigðin á síðustu leiktíð þegar að liðið endaði í 7.sæti. Auk Regueiro og Villa eru Patrick Kluivert, Edu og Luis Mora komnir til liðsins auk þess sem Quique Sanchez Flores hefur tekið við þjálfun þess.