23.06.16 - 21:32
Valur Páll Eiríksson
Brynjar Björn: Sigurinn ekki í skugga rauðu spjaldanna
Auglýsing

Brynjar Björn Gunnarsson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Björn Gunnarsson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, mætti í viðtal í kvöld í stað Rúnars Páls Sigmundssonar sem fékk rautt spjald í leiknum fyrir mótmæli sín við Þorvald Árnason dómara. Leiknum lauk með 1-0 sigri Stjörnunnar.
Stjarnan er með þá reglu að þeir sem fái rauð spjöld megi ekki fara í viðtöl svo þrátt fyrir vilja Rúnars og Guðjóns Baldvinssonar til að koma í viðtöl þá máttu þeir það ekki vegna reglna klúbbsins.
Brynjar Björn var spurður að því hvort að sigurinn væri ef til vill í skugga þessara rauðu spjalda sem Rúnar og Guðjón fengu.
„Já og nei, það er ekkert í skugganum af því, við bara vörðumst vel og ég held að við höfum fyllilega verðskuldað þessi þrjú stig í dag svona miðað við gang leiksins.\"
„Það var svolítil barátta úti á vellinum en við sköpuðum þokkaleg færi inn á milli og náðum að takmarka þá fyrir skotum fyrir utan og hornum og aukaspyrnum.\"

Brynjar Björn sagði enn fremur um spjöldin:
„Tvö rauð spjöld, ég veit ekki hvað ég á að segja um það, ég sá ekki almennilega hvað gerðist hjá Gaua, hann virtist vera að reyna að rífa sig lausan og hendir út hendinni svo hreinlega veit ég ekki hvað gerist þegar Rúnar er rekinn útaf.\"
„Ég heyrði ekki hvað hann sagði og hann gaf enga skýringu á því.\"
Stjarnan spilaði vel í fyrri hálfleik, pressuðu hátt og sköpuðu sér þónokkur marktækifæri. Þeir fengu hins vegar skyndisóknir í bakið og leikurinn varð töluvert lokaðri í síðari hálfleik.
„Það fer orka í það að pressa hátt uppi á vellinum og við ákváðum að þrengja svæðið milli varnar og miðju og þeir fundu svæði þar í fyrri hálfleik. \"
„Við kusum að fara aðeins aftar og þétta það þar sem þetta var svolítið opinn leikur í fyrri hálfleik, fram og til baka svo við náðum að hægja aðeins á þeim og þeirra sóknaraðgerðum.\" sagði Brynjar.
Viðtalið má sjá í heild sinni að ofan.