Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 22:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimild: Vísir.is 
Sjáðu lætin á Kópavogsvelli - Tvö rauð á loft
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var mikill hasar á Kópavogsvelli þegar Breiðablik fékk Fram í heimsókn í kvöld.

Fram komst yfir snemma í seinni hálfleik og það stefndi allt í sigur hjá liðinu en Höskuldur Gunnlaugsson skoraði jöfnunarmark úr vítaspyrnu í uppbótatíma.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  1 Fram

Höskuldur fékk að líta rauða spjaldið í kjölfarið þar sem hann var full ákafur þegar hann reyndi að ná boltanum af VIktori markmanni Fram eftir að hafa á undan hrint Kennie Chopart í jörðina.

„Allt sýður upp úr meðal manna, allt á suðupunkti og Gylfi aðstoðardómari hleypur inn á völlinn til að aðstoða Arnar dómara við að róa menn niður. Höskuldur hrinti Kennie og henti sér svo í glímu við Viktor!," skrifaði Alexander Tonini í textalýsinguna.

Kyle McLagan fékk einnig að líta rauða spjaldið fyrir að veitast að Höskuldi.

„Kyle í átökum við Höskuld og ýtir honum í hliðarnetið. Það þarf svo að laga netið eftir allt sem gekk á!" Skrifaði Alexander.

Sjáðu atvikið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner