Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Urðar yfir Garnacho - „Ef ég væri Fernandes myndi ég láta hann finna fyrir því"
Myndin sem Garnacho setti á samfélagsmiðla.
Myndin sem Garnacho setti á samfélagsmiðla.
Mynd: Instagram
Bruno Fernandes er fyrirliði United
Bruno Fernandes er fyrirliði United
Mynd: EPA
Rashford lék á láni hjá Aston Villa seinni hluta tímabilsins.
Rashford lék á láni hjá Aston Villa seinni hluta tímabilsins.
Mynd: EPA
Alejandro Garnacho, leikmaður Manchester United, setti inn mynd á samfélagsmiðla um helgina þar sem hann var í treyju merktri Marcus Rashford. Ekki United treyju heldur Aston Villa treyju og á myndinni eru tveir sportbílar. Troy Deeney, sérfræðingur á talkSPORT er alls ekki hrifinn af þessu uppátæki Argentínumannsins.

Garnacho er ekki í náðinni hjá United, Ruben Amorim vill hann í burtu, og eru fréttir á þá leið að United sé að bíða eftir rétta tilboðinu í kantmanninn. Hvorki Garnacho né Rashford eru í myndinni hjá Amorim.

„Hann vill ekki komast aftur í liðið, hann hlýtur að vera með einhver skipti klár og hann er að spila þetta svona," sagði Deeney.

„Þetta er ný kynslóð, ég þarf að reyna vera ekki gamall og pirraður, en það þarf slá helminginn af þessum gæjum í hausinn."

„Þeim leiðist og það er engin virðing, virðing er eitthvað sem er talað um í dag, það er ekki eitthvað sem þú vinnur þér inn."

„Ef ég væri hjá Man United og ef ég væri Bruno Fernandes þá myndi ég bíða eftir fyrsta degi á æfingu og ég myndi láta hann finna fyrir því, ég er ekki að reyna búa til fyrirsagnir, ég myndi láta hann finna fyrir því. Þetta er Man United, hver heldur þú að þú sért? Þú heimski maður."

„Það lítur þannig út að hann hafi fengið þessa treyju frá Marcus. Stuðningsmenn eru ekki hrifnir af þessu. Þú ert með Lamborghini, þú ert með Ferrari, Marcus er ekki í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum heldur, allt við þessa mynd pirrar stuðningsmenn. Þetta er uppstillt mynd (ætluð til þess). Þetta er úthugsað."

„Þetta er allt á honum, ekki umboðsmanninum hans, hann stýrir þessu algjörlega sjálfur."

„Þetta er nútímafótboltamaðurinn. Þegar honum gekk vel og fékk allt hrósið þá elskaði hann allt við það, núna er lægð og þá vill hann bara koma sér í burtu. Þetta sýnir bara karakterinn að mínu mati,"
segir Deeney.

Garnacho hefur verið orðaður við Napoli, Leverkusen og Chelsea að undanförnu.
Athugasemdir
banner