Biðjast afsökunar á rasískum ummælum í útsendingum frá HM

Nathan Ngoy fékk rautt spjald.

Mynd: EPA

Rafael van der Vaart.

Mynd: EPA

Nathan Ngoy fékk rautt spjald.

Mynd: EPA
Rade Bogdanovic, sparkspekingur serbneska sjónvarpsins, hefur beðist afsökunar á rasískum ummælum sem hann lét út úr sér þegar hann lýsti leik Belgíu og Írans á HM.
Ummælin lét hann út úr sér þegar hann var að ræða um rauða spjaldið sem Nathan Ngoy, leikmaður Belgíu fékk í markalausu jafntefli liðanna.
„Ég hef alltaf sagt það, og ég er ekki með kynþáttafordóma, en svartir leikmenn hafa ekki einbeitingu sem dugar lengur en í 60-80 mínútur. Þegar ég var að spila þurftum við að passa sérstaklega upp á þá til að þeir gerðu ekki mistök," sagði hinn 56 ára gamli Bogdanovic í lýsingunni. Hann lék þrjá landsleiki fyrir Júgóslavíu árið 1997.
Bogdanovic sagði síðan í lýsingunni að þetta ætti við um flesta svarta leikmenn. Hann og sjónvarpsstöðin hafa nú beðist afsökunar á ummælunum.

Sagði alla í japanska liðinu líta eins út
Fyrr á mótinu baðst Rafael van der Vaart, fyrrum landsliðsmaður Hollands, afsökunar á ummælum sem hann var með í sjónvarpsútsendingu í kringum leik Hollendinga og Japana í heimalandi sínu.
Þau ummæli lét hann út úr sér þegar Micky van de Ven varnarmaður Hollands missti af hlaupi Koki Ogawa.
„Þeir líta allir eins út og það hefur truflað hann," sagði Van der Vaart um leikmenn japanska liðsins og fékk harða gagnrýni fyrir. Hann baðst afsökunar og sagði að ummælin hefðu aðeins átt að vera grín.
Kick It Out, samtök sem berjast gegn mismunun og kynþáttafordómum innan fótboltans, gagnrýndu síðan afsökunarbeiðnina og að Van der Vaart hafi reynt að skýla sér á bak við að þetta hafi átt að vera grín.