Fotbolti.net
23.06.26 - 18:22
Brynjar Ingi Erluson

Dubravka nálgast Tottenham

Dubravka nálgast Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Slóvakíski markvörðurinn Martin Dubravka er nálægt því að ganga í raðir Tottenham Hotspur.
Þessi 37 ára gamli markvörður yfirgaf Burnley á dögunum eftir að liðið féll aftur niður í B-deildina.

Hann lék 35 leiki í ensku úrvalsdeildinni fyrir Burnley en áður hafði hann spilað með Newcastle United og var einnig í hálft ár á láni hjá Manchester United árið 2023.

Sky Sports segir yfirgnæfandi líkur á því að hann verði áfram í ensku úrvalsdeildinni, en Dubravka er í viðræðum um að ganga í raðir Tottenham.

Þar yrði hann þó ekki aðalmarkvörður liðsins heldur er talið að honum sé ætlað að vera Tékkanum Antonin Kinsky til halds og trausts.

Guglielmo Vicario er sagður á förum frá Tottenham og hefur verið orðaður við bæði Juventus og Napoli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.