Einn látinn og átta slasaðir eftir troðning á HM torgi í Jórdaníu

Stuðningsmenn Jórdaníu í stúkunni.

Mynd: EPA

Stuðningsmenn Jórdaníu í stúkunni.

Mynd: EPA
Einn einstaklingur lést og átta aðrir slösuðust í troðningi í miðborg Amman, höfuðborgar Jórdaníu, en þangað var mikill fjöldi mættur til að horfa á leik Jórdaníu gegn Alsír á HM.
Sjúkralið flutti níu særða sem tróðust undir í mannfjöldanum á sjúkrahús. Einn hinna særðu lést á sjúkrahúsi en hinir hlutu minniháttar til miðlungsmeiðsli, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglunni.

TENGT EFNI
HM: Jórdanía úr leik eftir tap gegn Alsír
Troðningurinn varð á hinu konunglega torgi í Amman þar sem fólk fylgdist með Jórdaníu tapa 2-1 gegn Alsír.