Kláraði leikinn eftir heilahristing - „Man ekkert þangað til ég ranka við mér á sjúkrabekk"

Fékk aðhlynningu á vellinum og sneri aftur inn á skömmu síðar og kláraði lokamínúturnar.

Mynd: Skjáskot/SÝN Sport

Uppalinn Eyjamaður sem hefur spilað með ÍBV allan sinn feril.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fæddur 1999 og spilaði sína fyrstu leiki með ÍBV sumarið 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður er lykilmaður í liði ÍBV, mjög öflugur varnarmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV er á siglingu og hefur unnið þrjá leiki í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vildi ekki skilja liðið eftir manni færri.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fékk aðhlynningu á vellinum og sneri aftur inn á skömmu síðar og kláraði lokamínúturnar.

Mynd: Skjáskot/SÝN Sport
Tryggvi skrifar þó meira um Sigurð sem spilaði lokamínútur leiksins eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg. Sigurður féll í jörðina eftir návígi við Birni Snæ Ingason.
„Verð líka að nefna höfuðhöggið sem Sigurður Arnar fékk og var hann augljóslega vankaður. Eyjamenn voru búnir með skiptingar sínar og á Íslandi er ekki aukaskipting ef leikmaður fær höfuðhögg. Eitthvað sem mætti skoða betur," skrifar Tryggvi í dálkinum Atvikið.
Fótbolti.net ræddi við Sigurð í dag.
„Ég er fínn í dag, ég var með smá höfuðverk, var þreyttur og svaf mikið í gær. En í dag líður mér ágætlega, ég mun taka því rólega næstu daga."
Sigurður segir að hann hafi fengið heilahristing þegar hann fékk höfuðhöggið. Hann var spurður hvort að honum, með þær upplýsingar sem hann hefur núna, finnist skrítið að hann hafi fengið að klára leikinn.
„Ég veit það ekki, ég veit ekki nákvæmlega hvernig mér leið þegar ég var inni á vellinum. Þeir sem ég ræddi við segja að ég hafi sagst vera góður og ég hafi bara ætlað að klára leikinn. Ég hef séð myndband af því þegar leikurinn klárast, þá fer ég í jörðina og þegar ég rankaði við mér þá var ég frekar ruglaður og mundi eiginlega ekki eftir neinu í leiknum. Ég man að ég var að velta því fyrir mér hvernig okkur væri búið að ganga í allt sumar, var eiginlega alveg í ruglinu þegar ég rankaði við mér, en allan tímann var ég með meðvitund. Það var rosa skrítið þegar ég rankaði við mér og kom til baka."
Ef þú hefðir fengið að sjá atvikið utan frá og taka ákvörðun út frá því, hefðir þú sagt að þú værir ekki að fara inn á aftur?
„Það er rosa auðvelt að segja það núna, en ég get ekki sett mig í þær aðstæður. Ég sjálfur get verið mjög kröfuharður og sannfærandi. Ég get ekki verið að benda á einhverja aðra, ég á sjálfur að vita betur heldur en að fara inn á. Þetta bara kom fyrir, getum ekki breytt því, en getum hugsað það upp á framtíðina að gera."
Eins og þér líður núna, ertu brattur á að geta tekið þátt í næsta leik?
„Það er spurning, þetta er alltaf óútreiknanlegt með heilahristinga, sumir jafna sig mjög hratt, en hjá öðrum tekur þetta lengri tíma. Mér líður vel í dag, prófaði að fara í vinnuna í morgun - er í vinnunni núna og það hefur gengið vel. Þetta kom hratt til baka í gær, það er því alveg möguleiki (að ég geti spilað), en þetta er svo óútreiknanlegt að ég get ekki gefið af eða á."
Skallaði boltann eftir höfuðhöggið
Á lokamínútunum, varstu eitthvað skrítinn inni á vellinum?
„Ég horfði á þessar síðustu mínútur aftur í gær og þá leið mér eins og ég væri að sjá þetta í fyrsta skipti. Ég vil allavega meina það að ég sé betri en það sem ég sýndi þessar síðustu mínútur, ég var líklega aðeins „off". Ég samt skalla alveg boltann allavega einu sinni eftir að ég kem aftur inn á. Ég var seinn í návígi og kannski aðeins ráfandi, en ekkert áberandi."
Hefði farið út af ef liðið hefði átt auka skiptingu
Á Íslandi eru ekki aukaskiptingar vegna höfuðmeiðsla. Slíkar skiptingar eru leyfðar á Englandi en alls ekki alls staðar í heiminum. Telur þú að þú hefðir verið tekinn út af ef ÍBV hefði átt skiptingu eftir?
„Já, ég er eiginlega viss um það. Ef það hefði verið einhver aukaskipting fyrir höfuðhögg þá held ég að ég hefði farið út af, eða ef við hefðum átt skiptingu eftir. Mér finnst mjög líklegt að ég hafi bara ekki ætlað að skilja liðið eftir manni færra og þess vegna hafi ég ákveðið að fara sjálfur inn á," segir Sigurður.

Uppalinn Eyjamaður sem hefur spilað með ÍBV allan sinn feril.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fæddur 1999 og spilaði sína fyrstu leiki með ÍBV sumarið 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður er lykilmaður í liði ÍBV, mjög öflugur varnarmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV er á siglingu og hefur unnið þrjá leiki í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vildi ekki skilja liðið eftir manni færri.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson







