Fotbolti.net
23.06.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rogers efstur á óskalista Arsenal

Rogers efstur á óskalista Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Morgan Rogers, sóknarmaður Aston Villa, er efstur á óskalista Arsenal í sumar. The Guardian greinir frá þessu.

Hann er metinn á um 100 milljónir punda en viðræður milli félagana hefjast á næstu vikum samkvæmt heimildum Guardian. Aston Villa ætlar að gera allt til að halda honum en það er bjartsýni í herbúðum Arsenal að samkomulag náist.
Rogers er spenntur fyrir Arsenal en hann gekk til liðs við Aston Villa frá Middlesbrough fyrir átta milljónir punda árið 2024. Hann skrifaði undir nýjan sex ára samning við félagið í nóvember.

Hann kom við sögu í 55 leikjum og kom að 26 mörkum í öllum keppnum fyrir Aston Villa á síðustu leiktíð.

Hann er í enska HM hópnum og kom inn á sem varamaður í 4-2 sigri liðsins á Króatíu í fyrstu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.