Fotbolti.net
23.06.26 - 18:25
Brynjar Ingi Erluson

Sá elsti til að skora tvennu á HM

Sá elsti til að skora tvennu á HM
Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo er kominn í gang á HM og hefur hann nú gert tvö mörk gegn Úsbekistan í annarri umferð í riðlakeppninni í kvöld, en hann hefur nú sett met sem elsti leikmaðurinn til að skora tvennu á mótinu.
Ronaldo, sem fagnaði 41 árs afmæli sínu fyrr á árinu, varð næstelsti leikmaðurinn til að skora á HM þegar hann stýrði boltanum neðst í hægra hornið í byrjun leiksins.

Það eitt og sér var ekki met hjá honum en hann setti met undir lok fyrri hálfleiks með öðru marki sínu. Þá slapp hann í gegn og lagði boltann hnitmiðað framhjá markverði Úsbeka.

Markið gerði Ronaldo að elsta leikmanninum í sögu HM til að skora tvennu. Í leiðinni bætti hann HM-markamet Eusebio fyrir Portúgal en Eusebio skoraði níu mörk á mótinu og Ronaldo er nú kominn með tíu.

Ronaldo heldur áfram að skrifa söguna á mótinu. Hann er einnig fyrsti leikmaðurinn til að skora á sex heimsmeistaramótum og er bæði elsti og yngsti markaskorari í sögu portúgalska landsliðsins.

Hann er kominn með 975 mörk á ferlinum og færist sífellt nær þúsund marka markmiði sínu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.