Fotbolti.net
23.06.26 - 17:47
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Frábær aukaspyrna Mendes og Ronaldo bætti met Eusebio

Ronaldo er mættur!

Ronaldo er mættur!

Canon

Mynd: EPA

Nuno Mendes skoraði sitt fyrsta mark á heimsmeistaramótinu með frábæru skoti úr aukaspyrnu og kom Portúgölum í tveggja marka forystu gegn Úsbekistan. Glæsimark var þá dæmt af Úsbekum eftir um hálftímaleik áður en Ronaldo gerði annað mark sitt.
Cristiano Ronaldo opnaði markareikninginn á HM snemma leiks og varð þar með fyrsti leikmaðurinn til að skora á sex heimsmeistaramótum.

Ellefu mínútum síðar bætti Nuno Mendes við öðru marki Portúgala. Þeir fengu aukaspyrnu rétt fyrir utan teig og flestir bjuggust við að Ronaldo myndi taka hana, þó hann og Mendes stæðu báðir yfir boltanum.

Það var hins vegar Mendes sem tók spyrnuna og stýrði boltanum glæsilega í vinstra hornið. Frábært aukaspyrnumark hjá bakverðinum.

Sjáðu aukaspyrnumark Mendes

Á 29. mínútu héldu Úsbekar að þeir hefðu minnkað muninn þegar Azizjon Ganiev átti frábært skot sem hafnaði í samskeytunum vinstra megin. Fögnuðurinn var þó skammvinnur. Brotið hafði verið á Joao Cancelo í aðdragandanum og eftir skoðun í VAR var markið tekið af niðurlútum Úsbekum.

Sjáðu markið sem var dæmt af Úsbekum

Ronaldo skoraði annað mark sitt á 39. mínútu. Hann fékk boltann í gegn, lagði hann snyrtilega framhjá markverðinum og boltinn lak í fjærhornið. Þetta var annað mark hans á mótinu og tíunda HM-markið á ferlinum og nú búinn að bæta met Eusebio, sem skoraði níu mörk fyrir Portúgala á HM.

Sjáðu annað mark Ronaldo
Nuno Mendes skoraði geggjað aukaspyrnumark

Nuno Mendes skoraði geggjað aukaspyrnumark

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.