Skorað 55 fleiri mörk í ár

Elías Már er markahæsti leikmaður deildarinnar með 12 mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR er það lið sem hefur skorað mest í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Markaskorun í Bestu deildinni hefur ekki verið af skornum skammti nú þegar venjulegt mót er hálfnað. Af þeim 68 leikjum sem búnir eru hafa verið skoruð 275 mörk, sem gera 4,04 mörk í leik að meðaltali.
Ef utanskyldir eru tveir aukaleikir vegna Evrópuþáttöku þriggja liða og miðað við markaskorun eftir ellefu umferðir hefur verið skorað 55 fleiri mörk en á sama tíma í fyrra.

Elfa Björk vekur athygli á þessari áhugaverðu staðreynd á samfélagsmiðlinum X.
Víkingur er í sérflokki ef litið er til marka fengin á sig en liðið hefur einungis fengið sex mörk á sig. Eitt þeirra marka kom í aukaleiknum vegna Evrópukeppninnar og fékk því Víkingur aðeins á sig eftir að hafa mætt öllum liðum einu sinni.
Elfa bendir jafnframt á að síðustu fimm tímabil hefur það 13 sinnum gerst að lið fái á sig að meðaltali tvö mörk eða fleiri yfir heilt tímabil og féllu 6 þeirra. Eins og staðan er núna eru sex lið sem gera atlögu að bætast í þann hóp.

Hins vegar hafa verið skoruð 261 mark í þessum 66 leikjum sem búnir eru. Það er 55 mörkum meira en á sama tíma í fyrra.
— Elfa Björk (@ElfaBSig) June 23, 2026
3,95 mark í leik... og svo furða einhverjir sig á að við séum ekki að framleiða frábæra varnarmenn?