Stjörnur sem komu heim en ekki í uppeldisfélagið

Gylfi Þór Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi átti stórkostlegan tíma með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Arnór Guðjohnsen valdi að fara í Val við heimkomu.

Mynd: Íslensk knattspyrna 1987

Eiður Smári fór í KR frekar en Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jim Bett fór í KR þegar hann kom aftur til Íslands.

Mynd: Tímarit.is

Atli Eðvaldsson heitinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Þór Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í samantekt sem birtist hér á Fótbolta.net í gærmorgun voru taldir upp nokkrir frábærir leikmenn sem fóru aðra leið með því að semja ekki við uppeldisfélag sitt við heimkomu. Skoðum það aðeins.
Þegar Gylfi samdi við Val fyrir tímabilið 2024 var um að ræða mögulega stærstu heimkomu í sögu íslenska fótboltans. Gylfi hafði leikið í ensku úrvalsdeildinni með Swansea, Tottenham og Everton og var besti leikmaður landsliðsins á gullaldarárunum. Hann ákvað að koma heim eftir dómsmál á Englandi og athyglin varð auðvitað gríðarleg. Gylfi spilaði bara eitt tímabil á Hlíðarenda og var svo keyptur yfir til Víkings þar sem honum langaði að verða Íslandsmeistari og sá það ekki gerast með Val. Hjá Víkingi varð hann strax lykilmaður í besta liði landsins og varð Íslandsmeistari á sínu fyrsta ári hjá félaginu. Allt stefnir í að hann verði aftur Íslandsmeistari í sumar en Gylfi endursamdi nýverið í Fossvoginum til 2027. Gylfi ólst upp hjá FH og var í Breiðabliki áður en hann fór ungur að árum til Englands.
Tryggvi Guðmundsson í FH (2005)
Tryggvi sneri aftur heim sumarið 2005 eftir atvinnumannaferil í Englandi, Noregi og Svíþjóð. Þótt hann væri uppalinn í Vestmannaeyjum valdi hann að ganga til liðs við FH í Hafnarfirði sem hafði árið áður orðið Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Tryggvi lét ekki bíða eftir sér. Hann skoraði 16 mörk í aðeins 17 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili og átti stóran þátt í að FH varð Íslandsmeistari annað árið í röð. Á næstu árum hélt hann áfram að raða inn mörkum og varð ein helsta táknmynd gullaldar FH. Á fimm tímabilum skoraði hann 51 mark í 92 deildarleikjum fyrir félagið og vann fjóra Íslandsmeistaratitla. Hann fór svo í uppeldisfélagið, ÍBV, eftir árin með FH. Tryggvi, sem var markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar í fjöldamörg ár, skrifar í dag um leiki í Vestmannaeyjum fyrir Fótbolta.net.
Arnór Guðjohnsen í Val (1998)
Þegar Arnór Guðjohnsen samdi við Val um mitt tímabilið 1998 og þar með lauk einum glæsilegasta atvinnumannaferli sem íslenskur fótboltamaður hafði átt fram að þeim tíma. Arnór hafði leikið með liðum á borð við Anderlecht, Bordeaux og Örebro og verið andlit íslenska landsliðsins um árabil. Arnór var uppalinn í Víkingi en valdi að ganga til liðs við Val á Hlíðarenda. Þótt hann væri kominn langt á fertugsaldurinn sýndi hann enn gæði sín og skoraði sjö mörk í deildinni og hjálpaði Val að bjarga sér frá falli. Heimkoma Arnórs vakti mikla athygli á sínum tíma en hann lauk svo ferlinum með Stjörnunni í Garðabæ.
Eiður Smári Guðjohnsen í KR (1998)
Það sem litaði heldur betur fótboltasumarið 1998 var að Arnór spilaði gegn syni sínum, Eiði Smára sem varð svo að margra mati besti fótboltamaður sem Ísland hefur átt. Eiður Smári var á þessum tíma orðin stjarna en langvinn meiðsli höfðu sett feril hans hjá PSV Eindhoven í uppnám og margir töldu að framtíð hans í atvinnumennsku væri í hættu. Eiður þurfti einfaldlega að byrja upp á nýtt. Hjá KR fékk hann tækifæri til að endurheimta leikgleðina og koma sér aftur í form undir stjórn Atla Eðvaldssonar. Dvölin varð stutt en afar mikilvæg. Eiður, sem steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Val eftir að hafa alist upp erlendis og hjá ÍR, fór fljótlega til Bolton og spilaði síðan með Chelsea og Barcelona, tveimur af stærstu félögum Evrópu. Heimkoman til KR skipti miklu máli fyrir ferilinn sem hann átti síðar meir.
Jim Bett í KR (1994)
Hérna er ekki hægt að tala um uppeldisfélag, en samt valdi Jim Bett annað félag þegar hann kom aftur til Íslands eftir að hafa spilað hér í upphafi ferilsins. KR-ingar vöktu mikla athygli þegar þeir fengu skoska landsliðsmanninn til félagsins sumarið 1994. Bett hafði leikið yfir 300 leiki fyrir Aberdeen og unnið skoska bikarinn undir stjórn Sir Alex Ferguson árið 1986. Þótt Jim Bett sé ekki íslenskur fellur hann vel inn í þessa samantekt enda var hann stórt nafn sem valdi íslenska boltann og er með mikla tengingu hér; kvæntist íslenskri konu og eignaðist með henni börn. Sonur hans, Baldur Bett, lék síðar meir með FH og Val við góðan orðstír. Segja má að Jim Bett hafi ungur að árum hafið leikmannaferil sinn hér er hann kom hingað til lands og spilaði með Val, en hann hjálpaði síðan KR að vinna bikarmeistaratitilinn árið 1994 og átti sinn þátt í að auka metnað og væntingar hjá Vesturbæjarfélaginu.
Atli Eðvaldsson í KR (1990)
Þegar Atli Eðvaldsson sneri heim sumarið 1990 eftir rúman áratug í atvinnumennsku bjuggust flestir við því að hann myndi ganga aftur til liðs við uppeldisfélagið Val. Atli hafði áður komið við sögu á Hlíðarenda í stuttum stoppum árin 1988 og 1989, en eftir tímabil með tyrkneska félaginu Genclerbirligi tók sagan óvænta stefnu. Atli samdi við KR og félagaskiptin vöktu gríðarlega athygli og voru mjög umdeild. Atli lék með KR í fjögur tímabil og varð einn af leiðtogum liðs sem var í stöðugri framþróun. KR var nálægt því að enda langa bið félagsins eftir Íslandsmeistaratitli strax á fyrsta tímabili hans þegar liðið missti af titlinum á markatölu. Þótt Atla hafi ekki tekist að leiða KR til Íslandsmeistaratitils sem leikmaður átti hann eftir að skrifa nafn sitt með gullnum stöfum í sögu félagsins. Sumarið 1999 stýrði hann nefnilega KR til fyrsta Íslandsmeistaratitilsins í 31 ár.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 22. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Frá Pétri til Söru Bjarkar: Hvaða heimkoma er stærst?

Tryggvi átti stórkostlegan tíma með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Arnór Guðjohnsen valdi að fara í Val við heimkomu.

Mynd: Íslensk knattspyrna 1987

Eiður Smári fór í KR frekar en Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jim Bett fór í KR þegar hann kom aftur til Íslands.

Mynd: Tímarit.is

Atli Eðvaldsson heitinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



