„Treysta á mann sem er ískaldur, með ekkert sjálfstraust og lélegt viðhorf“

Birnir gekk til liðs við Stjörnunnar á frjálsri sölu frá KA eftir síðasta tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Baldur er fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði gegn Breiðabliki fyrir viku síðan.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Núna er þetta orðið þannig að sóknarleikur liðs treystir á einn mann sem er ískaldur, ekkert sjálfstraust og lélegt viðhorf inni á vellinum,“ sagði sparkspekingurinn Baldur Sigurðsson um Birni Snæ Ingason í Stúkunni eftir tap Stjörnunnar gegn ÍBV.
Miklar vonir voru bundnar við Birni Snæ Ingason þegar hann gekk til liðs við Stjörnuna eftir síðasta tímabil. Eftir að hafa byrjað sumarið vel, þar sem hann kom að fjórum mörkum í fyrstu þremur leikjunum, hefur fjarað undan frammistöðu Birnis.

Frá því í þriðju umferð hefur Birnir einungis komið að einu marki með beinum hætti en hann skoraði jöfnunarmark Garðbæinga gegn Breiðabliki fyrir viku síðan.
Baldur segir jafnframt það hafa verið skrítið að halda Birni inni á vellinum gegn ÍBV og stakk upp á því að Benedikt Warén, sem var í byrjunarliði Stjörnunnar, myndi spila úti á vinstri kanti í stað Birnis.
Tryggvi Guðmundsson skrifaði um viðureign ÍBV og Stjörnunnar á Fótbolta.net og segir hann Birni hafa átt vondan dag. 'Birnir Snær Ingason átti ekki sinn besta dag. Getur verið að maður sé kannski full dómharður á hann en mér fannst lítið til hans sjást í leiknum. Fékk svo nokkuð gott tækifæri til að skora seint í leiknum en skot hans fór hátt yfir,' stóð í skýrslunni.
Stjarnan er í 8. sæti deildarinnar með ellefu stig. Jökull Elísabetarson var látinn fara frá félaginu fyrir tæpum tveimur vikum og tók Jón Þór Hauksson við stjórnartaumunum.

Heimild: Stúkan