23.07.05 - 11:26
Magnús Már Einarsson
Igli Tare til Lazio (Staðfest)

Tare fagnar marki.


Tare fagnar marki.

Albanski sóknarmaðurinn Igli Tare hefur gert þriggja ára samning við Lazio en hann kemur til liðsins frá Bologna. Tare sem er 31 árs vildi fara frá Bologna eftir að liðið féll úr Serie A í vor eftir tap gegn Parma í umspili.
Tare spilaði með Brescia áður en hann fór til Bologna í ágúst 2003. Hann skoraði fimm mörk í 26 leikjum með Bologna á síðasta tímabili.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en jafnvel er talið að Christian Manfredini miðjumaður Lazio fari í skiptum til Bologna.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en jafnvel er talið að Christian Manfredini miðjumaður Lazio fari í skiptum til Bologna.
