Fotbolti.net
23.07.25 - 13:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Botnlið Aftureldingar fær tvo erlenda leikmenn (Staðfest)

Fyrir leik hjá Aftureldingu í sumar.

Fyrir leik hjá Aftureldingu í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
Afturelding, sem er á botni Lengjudeildar kvenna, hefur bætt við sig tveimur erlendum leikmönnum fyrir seinni hluta tímabilsins.

Bri­ana Esteves kemur frá TA WPSL í Bandaríkjunum og getur spilað flestar stöður á vellinum. Hún mun styrkja Aftureldingu sóknarlega á vellinum.
„Ég tek ábyrgð en ég á ekki að vera sá eini sem gerir það"
TENGT EFNI

„Ég tek ábyrgð en ég á ekki að vera sá eini sem gerir það"

Jasmin Tadina kemur frá University of Northwestern Ohio þar sem hún hefur spilað sem miðjumaður.

„Afturelding býður stelpurnar hjartanlega velkomnar í Mosfellsbæinn!" segir í tilkynningu Aftureldingar.

Afturelding hefur aðeins náð í þrjú stig í sumar en Perry McLachlan sagði starfi sínu lausu sem þjálfari liðsins á dögunum. Sindri Snær Ólafsson tók við starfinu af honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.