23.07.26 - 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Omar Sowe í tveggja leikja bann - ÍBV áfrýjar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Omar Sowe, framherji ÍBV, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann eftir að hafa verið rekinn af velli í 2-2 jafntefli liðsins gegn KA.
Hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir að reka höfuðið í Birgi Baldvinsson. Þetta er fyrsta rauða spjaldið hans í sumar en hann fær auka leik í bann fyrir ofsafengna framkomu.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net ætlar ÍBV að áfrýja niðurstöðunni.
Ef það verður að því að hann fari í tveggja leikja bann mun hann missa af úti leik gegn gömlu félögum sínum í Breiðabliki og heimaleik gegn Fram.