Fotbolti.net
23.07.26 - 18:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sambandsdeildin: Þórður Gunnar skoraði fyrsta Evrópumark Vestra

Þórður Gunnar

Þórður Gunnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

RFS 4 - 1 Vestri
1-0 Stefan Panic ('17 )
2-0 Janis Ikaunieks ('23 )
3-0 Rostand Ndjiki ('43 )
3-1 Þórður Gunnar Hafþórsson ('64 )
4-1 Darko Lemajic ('66 )
Lestu um leikinn
Vestri heimsótti RFS frá Lettlandi í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar í dag.

Leikurinn byrjaði rólega en heimamenn brutu ísinn eftir rúmlega stundafjórðung þegar Stefan Panic skoraði. Janis Ikaunieks bætti öðru markinu við stuttu síðar þegar hann kom sér fram fyrir Elmar Atla Garðarsson inn á teignum.

Heimamenn voru ekki hættir. Marvin Darri Steinarsson varði boltann út í teiginn og Rostand Ndjiki var fyrstur að átta sig og skoraði þriðja mark RFS undir lok fyrri háflleiks.

Fyrsta mark Vestra í Evrópukeppni kom eftir rúmlega klukkutíma leik. Það var mikill darraðadans inn á teignum, Chriss-Albin Mörfelt átti slæman skalla úr góðu færi en Þórður Gunnar Hafþórsson komst í boltann og setti hann yfir línuna af stuttu færi.

RFS náði að svara um leið þegar Darko Lemajic innsiglaði sigurinn. RFS hefði hæglega getað skorað fimmta markið en Marvin varði nokkrum sinnum mjög vel undir lokin. Seinni leikur liðanna fer fram eftir viku á AVIS-vellinum í Laugardal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.